Æskan - 01.04.1994, Blaðsíða 45
ÍSLENSKA LÝÐVELDIÐ 50 ÁRA
ASGEIR ÁSGEIRSSON
EORSETI ISLANDS 1952-1968
ISLAND
ISLAND
650 ,
KRISTJÁN
ELDJÁRN
1916-1982.
FORSEfl
ÍSLANDS
1968-1980
Áður hafa komið út myndir af þremur forsetum íslands: Sveini Björnssyni (forseti 1944-1952),
Ásgeiri Ásgeirssyni (1952-1968) og Kristjáni Eldjárn (1968-1980).
Það verður mikið um að vera víðar en
hjá Alþingi og ríkisstjórn á 50 ára afmæli
Lýðveldisins íslands. Póstmálastofnun
mun einnig minnast þessa afmælis á verð-
ugan hátt og gefa út a.m.k. níu frímerki af
þessu tilefni. Þegar þið fáið 4. tbl. Æsk-
unnar í hendur verða sennilega komin út
fimm frímerki sem eiga að minna á ís-
lenskar listir á þessu fimmtíu ára tímabili.
AFMÆLISÚTGÁFAN -
MYNDIR AF FORSETUNUM
Afmælisútgáfan sjálf verður hins vegar
blokk með fjórum frímerkjum sem kemur
út 17. júní. Verðgildi hvers þeirra er fimm-
tíu krónur. Skreyting verður einnig á jöðr-
um blokkarinnar, utan myndflatar frímerkj-
anna. Þessi frímerki verða hönnuð af
Þresti Magnússyni.
Einungis eitt pósthús verður opið á
landinu þennan dag. Það verður í tjaldi á
Þingvöllum. Þar verða tveir mismunandi
stimplar notaðir. Annars vegar stimpill
sem nefna má opinberan fyrsta dags
stimpil en áletrun hans verður: „ÞING-
VELLIR ÚTGÁFUDAGUR 17. JÚNl 1994.“ I
honum verður líka merki þjóðhátíðarnefnd-
ar. Með þeim stimpli fást eingöngu stimpl-
uð frímerkin sem koma út þennan dag.
Hinn stimpillinn verður eins að öðru leyti
en því að í honum verður ekki orðið ÚT-
GÁFUDAGUR. Hann má því nota á öll gild
frímerki og er eðlilegast að kalla hann að-
eins Þingvallastimpil.
Auk þess má benda á að allir geta
pantað þessar stimplanir hjá Frímerkjasöl-
unni og á pósthúsum um allt land.
Ekki verður látið hér við sitja. Pósturinn
mun einnig gefa út sérstaka bók af tilefni
lýðveldisafmælisins. Þröstur Magnússon
hefur hannað hana. Eðlilega kemur hún
líka út sautjánda júní.
í afmælisbókinni eru æviágrip allra for-
setanna. Þá verður fjallað um sögu lýð-
veldisins og birtar nokkrar Ijósmyndir frá
Þingvöllum og Bessastöðum. Auk þess
verða í bókinni tvær blokkir af afmælisfrí-
merkjunum. Verður önnur þeirra stimpluð
en hin óstimpluð. Aukin heldur verður eitt
frímerki með mynd hvers forseta við æviá-
grip hans. Á þennan hátt verða frímerki að
nafnvirði 600 krónur í bókinni. Tvær útgáf-
ur verða af henni. Önnur verður á íslensku,
þýsku og dönsku - hin með texta á ís-
lensku, ensku og frönsku.
Bókin verður prentuð og unnin í Prent-
smiðjunni Odda hf. en frímerkin rasta-
djúpprentuð hjá Helio Courvoisier í Sviss.
LISTGREINAFRÍMERKIN
Þá skulum við snúa okkur að
listgreinafrímerkjunum. Þær grein-
ar, sem frímerkin sýna, eru tónlist,
listiðn, kvikmyndalist, listdans og
leiklist. Steinþór Sigurðsson list-
málari er fulltrúi myndlistarinnar og
jafnframt hönnuður frímerkjanna.
Listgreinafrimerkin fimm.
Æ S K A N 4 S