Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1994, Side 45

Æskan - 01.04.1994, Side 45
ÍSLENSKA LÝÐVELDIÐ 50 ÁRA ASGEIR ÁSGEIRSSON EORSETI ISLANDS 1952-1968 ISLAND ISLAND 650 , KRISTJÁN ELDJÁRN 1916-1982. FORSEfl ÍSLANDS 1968-1980 Áður hafa komið út myndir af þremur forsetum íslands: Sveini Björnssyni (forseti 1944-1952), Ásgeiri Ásgeirssyni (1952-1968) og Kristjáni Eldjárn (1968-1980). Það verður mikið um að vera víðar en hjá Alþingi og ríkisstjórn á 50 ára afmæli Lýðveldisins íslands. Póstmálastofnun mun einnig minnast þessa afmælis á verð- ugan hátt og gefa út a.m.k. níu frímerki af þessu tilefni. Þegar þið fáið 4. tbl. Æsk- unnar í hendur verða sennilega komin út fimm frímerki sem eiga að minna á ís- lenskar listir á þessu fimmtíu ára tímabili. AFMÆLISÚTGÁFAN - MYNDIR AF FORSETUNUM Afmælisútgáfan sjálf verður hins vegar blokk með fjórum frímerkjum sem kemur út 17. júní. Verðgildi hvers þeirra er fimm- tíu krónur. Skreyting verður einnig á jöðr- um blokkarinnar, utan myndflatar frímerkj- anna. Þessi frímerki verða hönnuð af Þresti Magnússyni. Einungis eitt pósthús verður opið á landinu þennan dag. Það verður í tjaldi á Þingvöllum. Þar verða tveir mismunandi stimplar notaðir. Annars vegar stimpill sem nefna má opinberan fyrsta dags stimpil en áletrun hans verður: „ÞING- VELLIR ÚTGÁFUDAGUR 17. JÚNl 1994.“ I honum verður líka merki þjóðhátíðarnefnd- ar. Með þeim stimpli fást eingöngu stimpl- uð frímerkin sem koma út þennan dag. Hinn stimpillinn verður eins að öðru leyti en því að í honum verður ekki orðið ÚT- GÁFUDAGUR. Hann má því nota á öll gild frímerki og er eðlilegast að kalla hann að- eins Þingvallastimpil. Auk þess má benda á að allir geta pantað þessar stimplanir hjá Frímerkjasöl- unni og á pósthúsum um allt land. Ekki verður látið hér við sitja. Pósturinn mun einnig gefa út sérstaka bók af tilefni lýðveldisafmælisins. Þröstur Magnússon hefur hannað hana. Eðlilega kemur hún líka út sautjánda júní. í afmælisbókinni eru æviágrip allra for- setanna. Þá verður fjallað um sögu lýð- veldisins og birtar nokkrar Ijósmyndir frá Þingvöllum og Bessastöðum. Auk þess verða í bókinni tvær blokkir af afmælisfrí- merkjunum. Verður önnur þeirra stimpluð en hin óstimpluð. Aukin heldur verður eitt frímerki með mynd hvers forseta við æviá- grip hans. Á þennan hátt verða frímerki að nafnvirði 600 krónur í bókinni. Tvær útgáf- ur verða af henni. Önnur verður á íslensku, þýsku og dönsku - hin með texta á ís- lensku, ensku og frönsku. Bókin verður prentuð og unnin í Prent- smiðjunni Odda hf. en frímerkin rasta- djúpprentuð hjá Helio Courvoisier í Sviss. LISTGREINAFRÍMERKIN Þá skulum við snúa okkur að listgreinafrímerkjunum. Þær grein- ar, sem frímerkin sýna, eru tónlist, listiðn, kvikmyndalist, listdans og leiklist. Steinþór Sigurðsson list- málari er fulltrúi myndlistarinnar og jafnframt hönnuður frímerkjanna. Listgreinafrimerkin fimm. Æ S K A N 4 S

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.