Æskan - 01.04.1994, Síða 48
Á björtum apríldegi gekk ég ásamt vin-
konum mínum um skemmtigarð í úthverfi
Lundúna. Þá barst að hlustum okkar til-
kynnlng um að Bad Boys Inc. væri að stíga
á svið. Forvitni okkar var vakin og við drifum
okkur að sviðinu þar sem fyrir var ógnarstór
hópur af öskrandi aðdáendum. Ástæðan
kom í Ijós þegar fjórir ungir piltar, hver öðr-
um myndarlegri, birtust á sviðinu og hófu
upp raust sína. Ekki nóg með að þeir gætu
sungið - danshæfileikarnir voru ekki heldur
af skornum skammti.
En hverjir voru þessir fjallmyndarlegu
piltar og hvaðan komu þeir? Þegar tækifæri
gafst til að hitta þá og svala forvitni um Fé-
lag slæmra stráka tók ég því fegins hendi.
Örlítið feimin en full tilhlökkunar skundaði
ég af stað. Matthew og Tony tóku á móti
mér. Þeir sögðu að David væri í símanum
og Ally hefði þurft að fara á sjúkrahús til að
láta líta á fingurinn á sér. Seinna kom í Ijós
að þeir höfðu verið að leika körfuknattleik
inni á skrifstofu umboðsmanns síns. Eftir
að þeir höfðu „lagt hana í rúst“ greip Alli
knöttinn illa og meiddi sig þannig. Var ein-
hver að tala um slæma stráka?!
Þegar Davíð kom úr símanum sögðu
strákarnir mér sögu hljómsveitarinnar...
[ apríl 1993 stofnuðu Davíð, Alli og Toni
ásamt fjórða manni hljómsveit og létu sig
dreyma um að verða frægar poppstjörnur.
Ósætti varð og félagarnir þrír sátu uppi án
aðalsöngvara. En fall er fararheill. í maí
hringdi drengur að nafni Matthías og sagð-
ist vilja verða aðalsöngvari hljómsveitarinn-
ar. Hann söng „Careless Whisper" í símann
og var ráðinn á stundinni. Þar og þá varð til
Félag slæmra stráka. ( kjölfarið fylgdi hljóm-
plötusamningur og síðan hefur leiðin legið
upp á við.
DRAUMAR RÆTAST ...
- Jæja, strákar! Áður en við tölum um
ykkur langar mig til að heyra hvað þið vitið
um ísland ...
T: Þar er kalt, er það ekki?
M: Tungumál ykkar er skrýtið. Ég var að
skoða Æskuna og ég skildi ekki eitt orð! En
þar voru fallegar landslagsmyndir. Þetta er
greinilega mjög fallegt land.
D: Ég veit að þar er hægt að fara á skíði.
Ég hef mjög gaman af því.
- Hvað giskið þið á að íbúarnir séu
margir?
D: Ja, svona tvær milljónir. Er það ekki
raunhæf ágiskun?
Þegar þeir fengu að heyra réttu töluna
kom undrunarsvipur á þá ...
Allir: Bara 265 þúsund!
T: Það er ekki mikið. En ég býst þá við
að ekki sé mjög þröngt um ykkur!
- Hvað höfðuð þið reynt lengi fyrir ykkur
á tónlistarsviðinu áður en Félag slæmra
stráka varð til?
D: [ mörg ár. Ég var í öðrum hljómsveit-
um á undan þessari. Ég átti heima í Bour-
nemouth og dreymdi alltaf um að fara til
Lundúna og verða poppstjarna. Ég er í sjö-
unda himni yfir að draumur minn er að ræt-
ast.
T: Við Alli unnum sem fyrirsætur og
kynntumst í því starfi. Við höfðum lengi
sungið dálítið og dansað. Þegar við kynnt-
umst Davíð og tækifærið bauðst ákváðum
við að láta reyna á það.
Þegar ég var lítill dreymdi mig um að
David William Ross - f. 15.3. 1974.
Hlutverk i BBi: Er dansari, syng bakraddir og sem
og útset sum lögin.
Sjálfslýsing: Ég er enn að læra að þekkja sjálfan
mig og er mjög viðkvæmur. Það er auðvelt að
stjórna mér en mér tekst þó æ betur að varast það.
verða frægur og ríkur - en ekkert meira en
aðra og ég ætiaði aldrei að gera neitt í því.
Mig hafði aldrei dreymt um að verða popp-
stjarna. Ég var ánægður með starfið.
M: Þetta er svo „stór“ draumur. Þegar
ég var lítill patti sagði ég við mömmu og
pabba að ég ætlaði að verða frægur söngv-
ari. Þau höfðu ekki mikla trú á því og báðu
mig að koma niður úr skýjaborgunum. Þau
studdu mig samt þegar ég sagði þeim að
þetta væri það sem ég vildi og gæti gert og
nú eru þau mjög stolt og ánægð með það
sem ég er að gera.
EN MIKIL VINNA ...
- Þið eruð orðnir poppstjörnur og ég sé
að þið eruð brúnir og sællegir. Er þetta það
Ijúfa líf sem ykkur dreymdi um? Flatmagið
þið á sólarströnd milli þess sem þið komið
fram og hljóðritið lög?
M: Við vorum í Flórída að taka upp
o
Tony James Dowding - f. 6.9. 1972.
Hlutverk: Samkvæmt fjölmiðlunum á ég vist að
vera slæmi strákurinn i BBI. Það er allt i lagi, þá
hef ég afsökun fyrir að gera það sem mig langar til.
Lýsing: Ég er brjálaður - ég geri mér sífeiit betur
grein fyrir þvi...
4 8 Æ S K A N