Æskan - 01.04.1994, Síða 51
Kveðjustund.
Hörður Ellert og Hjörtur Hjartarson kveðja vini sína úr Flórídakórnum.
Bolirnir eru kveðjugjöf.
KÖRFURÁHVERJU
HÚSI
- Hvar dvöldust þið?
Hörður: Við vorum á hót-
eli mótsdagana en fyrir og
eftir mótið gistum við á
heimilum stráka úr Drengja-
kór Flórída. Ég var heima
hjá strák sem var hjá mér
þegar þeir heimsóttu okkur
í fyrra.
Þar var sólarorka nýtt til
alls, fyrir upphitun og Ijós.
Ólafur: Þarna eru körfur
á hverju húsi!
Hrafn: Og alls staðar
sundlaugar!
Ólafur: Ekki alveg alls
staðar...
Hörður: Líklega við ann-
að hvert hús.
Jóhann Ari: Fólkið, sem
við vorum hjá, var misjafn-
lega ríkt.
Hrafn: Ég svaf í ofsalega
stóru vatnsrúmi!
- Gátuð þið skemmt
ykkur eitthvað?
Hörður: Já, við fórum til
dæmis í dýra- og skemmti-
garð, Bush Garden.
Jóhann Ari: Þar er einn
stærsti „rússibani" í heimi.
Hrafn og Ólafur: Já,
hann var æðislegur!
- Fóruð þið á ströndina?
Hrafn: Já, það var fínt!
Við busluðum þar í þrjá
klukkutíma...
Ólafur: Og hefðum viljað
vera miklu lengur!
- Var veðrið gott?
Hörður: Já - og stundum
var allt of heitt, 35-40 stig
um miðjan daginn.
Hrafn: Maður varð jafn-
vel feginn þegar rigndi!
Ólafur: Við fórum líka í
vatnsgarðinn!
Hörður: Hann heitir Æv-
intýraeyjan, „Adventure Is-
land“. Þar eru alls konar
Beðið eftir gusu...!
Kristján, Jóhann Marel, Finnur Marinó, Hjörtur Hjartarson, Hannes og Hrafn
Hjartarson i„Bush Garden".
rennibrautir, margar
mjög hressilegar!
Meira að segja var
svo mikil fallhæð í
einu tækinu að
enginn lagði í að
fara þar niður!
ÖNNUR
ÁHUGAMÁL
- Hafið þið tíma
fyrir önnur áhuga-
mál?
Jóhann Ari: Já,
maóur getur alltaf
fundið tíma. Ég er
að læra á píanó, er
á 4. ári. Ég hef verið dálítið í
leiklist og sungið víða. Ég
lék Emil í Þjóðleikhúsinu á-
samt öðrum og hef verið
með í þremur stuttmynd-
um, til dæmis Það var
skræpa. Ég var í hlutverki
Amals í söngleiknum Amal
og næturgestirnir sem Óp-
erusmiðjan setti á sviö. Ég
hef sungið einsöng með
Karlakór Reykjavíkur og
Sinfóníuhljómsveitinni, tal-
aö og sungið í kvikmynd-
inni, Þrinsessan og durtarn-
ir, og sungið inn á diska,
t.a.m. Ronju ræningjadóttur
og Hvaö á að gera?
Hörður: Ég hef mestan
áhuga á körfubolta. Ég æfði
hann og knattspyrnu með
Fjölni í Grafarvogi og ætla
að byrja aftur í körfunni. Ég
var líka mörg ár í barna-
stúku.
Við heimkomuna: Sigurvegararnir
í tvísöngskeppninni:
Ólafur Friðrik og Hrafn.
Ólafur: Ég er að læra á
píanó, er að Ijúka öðru ári.
Ég hef farið á tvö námskeið
í knattspyrnu og var í
Rokklingaskólanum.
Hrafn: Ég læri á gítar hjá
Tónskóla Sigursveins. Ég
fékk áhuga á því þegar ég
fór með frænda mínum í
Skíðaskólann í Kerlingar-
fjöllum. Hann er skíðakenn-
ari og leikur á gítar. Ég var
fyrst í leikskólakór og
seinna með Rokklingunum.
Þeir hafa í nógu að snú-
ast, strákarnir. Ég tef þá
ekki lengur, þakka þeim fyr-
ir spjallið og óska þeim og
kórnum góðs gengis.
KH.
Hrafn, Jóhann Ari, Hörður Ellert og Ólafur Friðrik.
Æ S K A N 5 1