Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1994, Síða 52

Æskan - 01.04.1994, Síða 52
Umsjón: Ragnheiður Jóna Ármannsdóttir. ÚTILEGA AÐ ÚLFLJÓTSVATNI Frásögn af félagsútilegu Landnema, úr Flokksbók Freyja. Útilega að Úlfljótsvatni dagana 25,- 27. febrúar 1994. Það var mjög gaman í þessari útilegu. Við gerðum margt skemmtilegt. Farið var í íþróttakeppni, sund, næturleik, þrautaleik o.fl. Við Freyjurnar unnum í- þróttakeppnina. Gyðjurnar hlutu viður- kenningu fyrir þrautaleikinn. Við fórum í morgunleikfimi undir stjórn Draupnis. Við fórum í sund í Ljósafosslaug. Það var mjög gaman. Við gengum báðar leiðir. Við fórum líka í einn næturleik. Steini hafði verið rænt frá kónginum. Við áttum að finna púka sem kveikti annað veifið á vasaljósi. Þúkinn var Gaui. Við vorum eiginlega alltaf að syngja, næstum því stanslaust. En það var mjög gaman. Við flögguðum báða morgnana. Nýliðar voru vígðir í félagið. Við drukkum Indíánamjöð. Mér fannst allt í lagi með bragðið. Kvöldvökurnar voru skemmtilegar. Á þeirri síðari áttu allir að flytja skemmtiat- riði. Við áttum að búa til söng um alla foringjana. Mér fannst hann bara takast vel. Við borðuðum mikið! Það var morg- unverður, hádegisverður, kaffi, kvöld- verður og kvöldkaffi. Maðurinn, sem eld- aði, er kallaður Maggi. Það var alltaf sunginn borðsálmur fyrir og eftir matinn. Við Freyjurnar fengum Töfrafánann einu sinni. En þann fána hlýtur sá fiokkur sem gengur snyrtilegast um í matsaln- um. Og þaö síðasta, sem ég man eftir að við gerðum, var að við sváfum! Kría. FRÆÐST UM NOKKRA FÉLAGA Kristín 11 ára. Hef verið skáti frá því í janúar 1994. Áhugamál: Skátastarf og hlaup. Skemmtilegasti söngurinn: Skátasyrpan. Það skemmtilegasta í starfinu: Útilegurnar - af því að þar er svo margt gert og starfið fjölbreytt. Gerðist skáti af því að vinkona mín er skáti. Hlín 11 ára. Ég varð skáti í september 1993. Áhugamál: Skátastarf og körfugerð. Skemmtilegasti söngurinn: Nú suðar undiraldan. Skemmtilegast í starfinu: Útilegurnar. Gerðist skáti af því að það var svo skemmtilegt í sumarbúðunum að Úlfljótsvatni. Una Særún 11 ára. Skáti frá því í september 1993. Áhugamál: Skíða- og skautaferðir, skátastarf, kettir, hjólreiðar. Skemmtilegasti söngurinn: Ömmulagið. Skemmtilegast: Útilegurnar. Varð skáti eftir að ég fór í sumarbúðir að Úlfljótsvatni. Hverjum ég vil helst líkjast: Þabba. Lilja 10 ára. Hef verið skáti í eitt ár. Áhugamál: Skátastarf, píanóleikur o.fl. Skemmtilegasti söngurinn: Ömmulagið. Skemmtilegast í starfinu: Útilegurnar og að binda hnúta. Hvers vegna skáti? Mig langaði bara að prófa. Berglind 11 ára. Varð skáti í febrúar. Áhugamál: Skátastarf, píanóleikur o.fl. Skemmtilegasti söngurinn: Ömmulagið. Það skemmtilegasta: Að binda hnúta. Ég gerðist skáti af því að vinkona mín er það. Ingunn 11 ára. Hef verið skáti i tvö ár. Áhugamál: Skátastarf. Skemmtilegasti söngurinn: Margir. Skemmtilegast í starfinu: Útilegurnar og fundirnir. Ég gerðist skáti af því að systir mín tók mig með sér á fund. Hverjum ég vil líkjast? Systur minni. Lilja, Una, Sirrý, Ingunn, Elva, Kria, Ólöf, Gunna og Hlín. A FLOKKSFUNDI Mánudaginn 14. mars brá ég mér á fund hjá skátaflokknum Freyjum í sveit- inni Þórshamri í Landnemum. Þetta er mjög fjölmennur flokkur. í honum starfa fimmtán hressar skátastúlkur. Þegar mig bar að garði var flokksforinginn önnum kafinn við að sníða leður í flokksfána og -merki. Fundurinn var settur með skátaheit- inu. Síðan voru sungin nokkur skátalög: Skátasyrpan, Da ram dam dara og Nú suðar undiraldan. Þá var komið að verkefni fundarins. Það var gerð flokksfána og merkis. Nokkrar umræður urðu um hvernig merkið ætti að vera, hvort nota ætti gamla merkið sem þegar var komið á flokkskistuna eða teikna nýtt. Eftir at- kvæðagreiðslu um málið var Ijóst að meirihlutinn vildi halda gamla merkinu. Nú var hafist handa og verkum skipt. Annar helmingurinn sá um flokksfánann en hinn um gerð merkis til að festa á búninginn. Verkefninu var ekki að fullu lokið á þessum fundi svo að það varð að bíða þess næsta. Fundinum lauk með afhendingu hvítuorðunnar til þeirra sem til hennar höfðu unnið. Honum var síðan slitið með bræðralagssöngnum. S 2 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.