Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1898, Síða 49
43
hvíli við bak stólsiiih, og skaltu þá |halda höfði
og herðum í líkuin stelliugum og þegar þú ert á
gangi.
Snjólina.n.
Eptirfylgjandi skýrsla sýnir á hvaða hæð
fyrir ofan sjáfarmál að regn umhverfist í snjó,
er það fellur a jörðina, á öllum tímum árs, á
hverjum 10 norðurbreiddai’stigum frá miðjarðar-
línu að telja:
N.breiddarstig..........Fet yfir sjávarmál.
0 15.260
10......................... 14,764
20......................... 13,478
30......................... 11,484
40.......................... 9,000
50.......................... 6,334
60.......................... 3,818
70........................... 1,270
Saga niálvjelarinnar.
Robert Hook sannaði árið 1667,aðhægt væri
að láta hljóð berast með strengdum vír til fjar-
lægra staða, en engin not fylgdu þeirri uppgötv-
an. Þangað til árið 1821 að pröfessor Wheat-
stone sýndi ,,Töfra-hörpuna“ sína, sem fiutti
hljóðið úr spiladós (music box) neðan frá kjall-
ara upp í efri herbergin. Hinn fyrsti eiginlegi
uppgötvari málvjelarinnar (TelephonsinsJ var
Jónann Philip Reis, þýzkur vísindamaðúr og
háskölakennari i Eriedrichsdorf. 25. apríl 1861
sýndi hann málvjel sína í Frankfort Vjelin
hafði alla nauðsynlega eiginlegleika málvjelar-
innar eins og hún er nú, en vegna þess að menn
höfðu þá enga hugmynd um nytsemi hennar.
var því lítill gaumur gefinn. Reis dó árið 1874,
eptir margar árangurslausar tilraunir til að
vekja athygli vísindamannanna fyrir þessari
uppgötvan sinni, og án þess að njóta nokkurra
ávaxta af henni. Og það er engum efabundið að
sálarangist, afleiðing af sífeldum mishöppum
í þessu efni, flýtti fyrir dauða hans. Um þær
mundir voru aðrir vísindamenn að fullkomna
liugmyndina, svo sem prófessor Elisha Gray og