Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Side 11

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Side 11
ALMANAK 1916 5 Litur loftsins um sólsetur. Þegar himininn er gráleitur og myrkur um sólsetur, eða slái á hann grænum eSa gul-grænum lit, er regn í vændum. Rautt sólar- lag með skýjum, er verða myrkari, þegar fram á nóttina líður boðar einnig regn. Baugur um sólina. Með baug um sólina meinum vér hina stóru hringi, eða hring- parta, er liggja urn sólina. Þegar baugur sést um sólina eftir gott veður, má búast við regni. Kóróna. Með kórónu meinum vér smáa hringi, er sjást oft um sólina eða tunglið. Þegar kórónan fer minkandi, bendir það á regn, stækki hún, er fagurt veður í vændum. Regnbogar. Regnbogi að morgni dags er álitinn boða regn ; regnbogi að kveldi, fagurt veður. Litur himinsins. Þegar þykkur, djúpur blámi sést á himninum, jafnvel þótt hann sjáist gegnum skýjað loft, boðar það fagurt veður; verði bláminn ljósari (hvítari), er stormur í nánd. Þoka. Þokur benda á staðviðri. Morgunþoka er vanalega horfin um hádegi. Skafheiður himinn. Þegar gufuhvolfið er óvanalega skfrt, og rnjög stjörnubert er, og þær sýnast eins og deplar, er regn í vændum. Skýin. Þegar vór athugum skýin, gefum vér gætur að, hvers konár ský það eru, hvernig þau hreylast og hvernig þau eru í lögun. Ský þau, er menn oft nefna ,,hestatögl“ köllum vér þráðaský (Cirri). Einkenni þeirra er, að þau sýnast eins og þunnur vefur, er hangir lauslega saman eins og tagl á hesti, eða þau sýnant fléttuð saman eins og hin fjarlægu ský, er mynda sólarhringina. Litlar, reglu- lega myndaðar þyrpingar af skýum þessurn sjást oft fyrir stöðugu- blíðviðri. En þráða-ský eru líka stundum fyrirboði storms. Þegar þau boða storm, eru þau vanalaga þéttari (fleiri) og hliðar þeirra skörðóttar, og þá verða þau oftast að hvítleitum, löngum skýbakkn. Ský þau er alment eru kölluð ,,baðmullar-sekkir“, eða “þrumuhöf- uð“, köllum vér skýja-þyrping (Cumulus). Þegar þau sjást um heitasta tíma dagsins, en hverfa með kvöldinu, er framhaldandi blíðviðri í vændum. Þegar þau aukast skyndilega, síga hægt niður í gufuhvolfið, og hverfa ekki undir kvöldið, mun brátt von á regni. Þegar sérstök smáský virðast eins og slitna frá þeim, má búast við skúrum. Ský þau er sjást \analegast eftir miðnætti, sýnast liggja marflöt og taka yfir mikið svæði, boða fagurt veður. Lítil svört vindaský eru fyrirboði regns. Loftþyngdarmælir. Þegar vér notum loftþyngdarniæli, er áríðandi að gefa gæturað
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.