Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Page 35
ALMANAK 1916
27
in er einkenni allra ljóóa Matthíasar. Hann hefir
kent til meS olnbogabörnunum. Hann hefir unnaS
jafnréttinu, — jafnréttinu í mannfélaginu, jafnrétti
karla og kvenna, jafnrétti allra manna yfirleitt, — án
þess þó aS fara meS sociaZísfa-kenningar eSa jafn-
aSarmensku í þeim skilningi. Og hann hefir haft ó-
bilandi trú á sigurmátt hins góSa. ÞaS er ekki til-
viljan ein, aS oróin : ,,Lífió er sigur og guSleg náS”
hrutu honum af vörum. ÞaS er insti kjarni lífsskoS-
unar hans. Sú trú er svo sterkur þáttur eólis hans,
aS um leiS og hún væri tekin frá honum, væri ljósið í
sálu hans slökt, — hann sæi ekki til dags upp frá því.
EldmóSurinn, sem er í ljóSum hans, hrifningin, sem
yfir honum er, þegar hann yrkir, og þeir komast í,
sem ljóS hans lesa, er borin og studd af þessari trú.
Og þegar eg er aS gera mér grein þess, hví þetta skáld
hafi öSlast ástsæld þjóSar sinnar um fram önnur, nem
eg ávalt staSar fyrir framan þetta. Hann hefir látiS
sér takast um fram aSra menn aS syngja þaS traust
inn í huga þjóSar sinnar, að engu sé aS kvíSa, tilver-
an sé góSum höndum, sannleikurinn vinni sigur á
endanum.þótthann kunni aS lúta í lægrahaldi í bili,—
hverju góðu málefni sé borgiS, ef drengilega sé barist
og leikurinn fagur. ViS sönginn hans hefir líka þjóS
vorri aukist hugur og dugur; um hans daga hefir hún
færst í ásmegin í samanburSi viS þaS sem var. Eg
geri mér í hugarlund, aS eiginlega hafi ekkert skáld
síSan á dögum Hallgríms Péturssonar aukið eins þrótt
þjóSar vorrar og framsóknarhug í báráttunni fyrir
tilverunni og Matthías Jochumsson. En þaS er líka
hiS eiginlega ætlunarverk skáldsins. ÞaS skáld nær
ávalt traustum tökum á huga þjóSar sinnar, sem bezt
líétur sér hepnast þetta. Og á þeim skáldum þurfum
vér mest aS halda.
Þessi bjartsýna sigurtrú ætla eg sé þungamiSjan
í skáldskap hans. Hún birtist svo aS segja í hverju