Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Side 61
ALMANAK 1916
53
GUÐLAUGUR MAGNÚSSON
cr fæddur 21. nóvember 1848,
er hann bróðir Jóhannesar,
sem áður er liér sagt frá.
Eftir að hann misti foreldra
sfna, ólst hann upp hjá
móðursystur sinni, Krist-
ínu Jónsdóttur og manni
hennar, Eiríki Jónssyni, er
bjuggu á Hafurstöðum á
Eellsströnd, og hjá beim var
hann þar til 1874, að hann
fór vestur um haf í fylgd
með bróður sínum, Jóhann-
esi og hafa þeir orðið sam-
ferða síðan. Nam Guðlaug-
ur land við hlið bróður
síns og létu sama nafnið
ná yfir báðar jarðirnar, er
Guðlaugs fyrir sunnan þjóð-
voginn en Jóhannesar fyrir
norðan; má segja að “vell-
irnir liggi saman”, eins og
sagt var heima á íslandi. Póstafgreiðslu hefir Guðlaugur
haft á heimili sínu um 13 ár og nefnir pósthúsið Nes;
þótti honum Dögurðarnes of langt og tók því síðasta
atkvæðið, var og hræddur um að Dögurðar mundi eigi
njóta sín í enskum munni. Meðráðamaður í sveitarstjórn
Gimlisveitar var liann framan af eftir að nýlendan fékk
sveitar-réttindi.
Guðlaugur Magnússon giftist 12. apríl 1898, Henriettu
Vilhelmínu Clausen, þá bæði til heimilis á Gimli. Por-
eldrar hennar voru þau hjónin Marteinn Clausen í Kefla-
vík í Gullbringusýslu og Þorgerður Gunnlaugsdóttir,
ættuð af Vatnsleysuströnd í sömu sýslu. Pyrri maður
Henriettu var Sveinn Guðbjartson Priðrikssonar, ættaður
4