Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Side 66
58
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
að Skapti bróðir hans fluttist burtu, flutti Benidikt
á jörð hans, er Skapti heitinn nefndi Kjalvík, og er
nafnið dregið af því að í vík lítilli er skerst inn í landið,
fanst rekinn kjölur úr litlu skipi. í Kjalvík hefir Beni-
dikt búið síðan farsælu búi í full 34 ár. Þau Benidikt
og Sigurveig hafa eignast tíu börn og lifa séx, þrír synir
og þrjár dætur; elztur bræðranna er Yigfús, síðan Tryggvi
og Skapti yngstur. Af dætrunum er Sigrún elst, er hún
gift Halldóri Ivjernested bónda þar í bygðinni, þá Guðný,
gift Guðmundi Jónssyni og búa í Glenboro, Man., og
Jóna, yngst, til heimilis í Winnipeg. Bræðurnir þrír eru
allir í föðurgarði, og reka búskapinn með foreldrum sín-
um. Tryggvi er ekkjumaður, hét kona hans Vilfríður
Sveinsdóttir, er lézt eftir skamma sambúð; en hinir bræð-
urnir hafa eigi kvænst. Eru öll þessi börn einkar mann-
vænleg.
Kjalvík er í þjóðbraut og var í gamla daga margur
maðurinn þar næturgestur. Áður en járnbraut var
lögð inn í nýlenduna og ferðast var á tveim jafn-fljótum.
eða með uxa — einn eða tvo—í fararbroddi, var oftast áð 1
Kjalvík, var þar seldur greiði ferðafólki, en margir komu
þar líka sem ekkert liöfðu iað borga með, en var sýndur
sami beini og hinum, og munu ekki svo fáir, er fóru þar
um farinn veg með léttan malpokann, minnast ástúðar
húsmóðurinnar í Kjalvík. Þau Benidikt og Sigurveig
hafa biiið ]iarna farsæiu búi og stundað ait með trúleik
og vandvirkni og er Benidikt orðlagður fyrir skilsemi í
öllum viðskiftum. Tvö ár sat hann í sveitarstjórn Gimli
sveitar og póstafgreiðslu hefur hann haft um mörg ár og
heitir póstliúsið Húsavík. Hafði Sigurður Christopher-
son sett það á stofn og nefnt eftir bújörð sinni þar i
bygðinni; tók Benidikt við því af honum og hélt nafninu.
Þess skal hér getið til gamans, er Benidikt sagði mér, að
hann og Sigurður Christoplierson hefðu bygt fyrsta smá-
bát, er notaður var á vatninu. Yar það rétt eftir að á
land var komið, að þeir fengu leyfi hjá Mr. Taylor, um-
boðsmanni stjórnarinnar, að mega taka við innan úr
einum flatbátnum, sem komið var á frá Winnipeg. Byrj-
uðu þeir smíðið að morgni og rendu kænunni á flot að