Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Side 75
ALMANAK 1916
67
leita slóðar, sem liann vissi af nálægt, fann hann liana og
\ ið náðum að Þverá og sátum l)ar hríðteptir næsta dag.
Hríðin var svo dimm að fylgdarmanninum frá Holtakoti
var ekki slept og er þó ekki iangt á miili þessara bæja,
eins og kunnugir vita.
Um veturinn þegar eg var í Húsavík, fylti allan
Skjáll'andaflóa með hafís og fraus öll sú heila saman með
lagís. ís þessi var mjög ógreiður yfirferðar, fyrir hafís-
jakana, sem stóðu uppúr iagísnum og var líkast því að
ganga í lirauni, samt var verið að leggja lágvaði fyrir
liákall rétt á höfninni framundan kaupstaðnum eða und-
an svonefndri Böku, sem gekk fram af Húsavíkurhöfða.
Johnsen lét þá lilaða snjó upp að öllu íbúðarlmsinu
og húðinni, sem var undir sama þaki, því kuldinn var
napur þegar vindur stóð af íshreiðunni norðvestan flóann.
Byggingar á Húsavík voru í þá daga ekki merkilegar að
mestu leiti þök og veggirnir mjög lágir. Öll voru húsin
bikuð með koltjöru og var orðið þykt lag af henni nema
í stöku stað, þar sem sólin hafði náð til. Ein bygging
var lijá sýsiumannshúsinu sem var tómt þak alveg frá
jörð og var það kallaður skúr.
Vissulega hefur Jakob Johnsen verið svinnur maður
og bendir þetta í þá átt. Um veturinn þegar eg var að
læra að skrifa var það siður Johnsens að láta mig og
bræður mína hafa penna, sem börn hans höfðu áður
notað.en þe.ss utan var hann mesti fyrirhyggjumaður og
bezti búmaður, enda kom konu lians betur að hafa frjáls-
ar liendur í búrinu og jafnvel líka í búðinni; vissu engir
]>að betu r en fátækiingarnir á Húsavíkurbakkanum
og sveitunum í kring. Sem dæmi uppá þetta, skal þess
getið að eittsinni kom í kaupstaðinn kona framan úr
Reykjadai, kvaðst hún eiga dóttir, sem Hildur héti og
ætti hún að fermast um vorið. Fékk þá þessi kona ferm-
ingarföt eða efni í þau, handa dóttur sinni og varð mjög
glöð og þakklát, bað Guð að launa, en segir um leið og
liún er að kveðja: “enn þá vantar Hildi á höfuðið,” úr
því var strax bætt, og varð þetta síðan alment máltæki
í piássinu.
Eftir því sem mér liefur verið sagt, mun Jolinson hafa