Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Blaðsíða 76
68
ÓLAFUR S. THORGF.IRSSON:
íengið sinn fyrsta gróða á selskinnaverzlun. Iveypti
hann seiskinn norður á Sléttu og Langanesi og fór lesta-
ferðir með ])au suður á iand þar sem þau seldust fyrir
hátt verð. Verzlunar-andi lians kom snemma í ljós, en
oft lét Johnsen brúnir síga og voru ístöðulitlir hræddir
við hann, en sakir orðheldni lians og húvits var hann
virtur af öllum sem þektu liann eða kyntust honum, þó
svipur hans væri nokkuð harðneskjulegur og líktist
manni, sem er sjálfstæður og ekkert hefir að óttast.
Þegar hin nýju póstlög gengu í gildi og öllum póst-
göngum hæði breytt og fjöigað að mun, póstafgreiðsiu-
staðir og bréfahirðingastaðir stofnaðir um alt landið,
þá gerðist eg póstafgreiðslumaður á Grenjaðarstað undir
Óla Finsen, sem var hinn fyrsti póstmeistari í Reylcjavík
og liélt eg því starfi þangað til eg fór til Ameríku liið
fyrra skifti og þegar eg kom heim aftur, tók og enn við
póstafgreiðslustörfum í Múla af séra Benidikt Kristjáns-
syni frá Helgastöðum, sem þá var prestur á Grenjaðarstað
og vildi verða iaus við starf þetta; þá gengdi eg starfi
þessu þangað tii vorið 1882 að eg fluttist austur á Seyðis-
fjörð einsog fyrr sogir.
Ástæðan tii þess að eg flutti frá Múla og austur á
Seyðisfjörð var að þar var þá álitið að væri regluleg gull-
náma, með því að Norðmenn voru þá að ausa þar upp
þorski og síld og svo liafði eg liugsað mér að stunda þar
smáskamtalækningar, sem eg hafði .nokkuð numið af
föður mínum og hafði hjálpað honum frá því eg var ung-
lingur, enda var ])otta nálægt eða í því plássi, þar sem
hann hafði gotið sér góðan orðstír þegar hann var prestur
á Ási í Fellum. Sjávarútvegurinn hrást mér algjörlega,
með því iíka að eg þekkti sjálfur lítið til sjóútgerðar, varð
að sjá alt með annara augum og félagsmaður, sem ég tók
mér var engu betri; ónýttist fyrirtækið og allir þeir pen-
ingar er í það gengu.
Mestan hluta tímans sem eg dvaldi á Seyðisfirði var
eg á Vestdalseyri og árið 1883 hygði eg þar vandað hús.
Undirlög hússins voru fylt með grjóti og múrstein hlaðið
f veggina tii tryggingar í stórviðrum, sem þar voru mjög
tfð. Fiuttum við í þetta hús 5 .júií sama ár. Bræðurnir