Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Page 77
ALMANAK 1916
69
Sveinn og Björgólfur Brynjólfssynir voru aðalsmiðirnir
við bygginguna,
Hinn 11. júlí 1884 flutti faðir minn til mín í þetta hús
og dvaldi hjá mér þar til eg fluttist til Ameríku,alfarinn;
fór hann þá norður að Garði í Aðaldai.
Þegar eg kom á Seyðisfjörð átti eg kost á að kaupa
hús inná öldunni, en vegna snjóflóða, sem eg hoyrði getið
vildi eg ekki setjast þar að, og leigði því hús á Yestdals-
eyri, sem Björn póstur átti og hjó líka sjálfur í.
Um veturinn 18. fehrúar kom yfir ölduna þetta voða
snjóflóð, sem drap yfir 20 manns og sópaði hurtu mörg-
um húsum og sumum út í sjó. Eitt af þeim var húsið,
sem mér hafði boðist til kaups en það var hús Sigurðar
homóöpatha frá Breiðavaði. Fyrir flóðið varð margt af
fólki lmsvilt og flutti sumt af því í mitt hús þangað til
það fékk aðra verustaði.
Einn vetur léði eg stofu fyrir barnaskóla og var Lárus
Tómasson kennari. Elzta dóttir mín gekk á þennan
skóla, sem varð auðvitað að litlum notum þar sem hún
fór úr landi sama ár.
Og ekki má eg gieyma að minnast á hin gömlu matar-
áhöld: askinn og hornspóninn. Reyndar man eg ekki
eftir að eg horðaði úr aski en þó má það vel hafa verið,
en hornspón brúkaði eg í mörg ár og hefi víst ekki lagt
hann niður fryr en í Múla eða Seyðisfirði. Á heimili mínu
voru þó altaf brúkaðir askir og man eg eftir þeim seinast
þegar og var um fermingu, en þá var samt mikið komið af
skáium og spilkomum; svo var í hrúki nokkuð af tin-
diskum. Tindisk átti eg og var stafrofið þrykt á barðið,
svo eg gæti lært það meðan eg var að horða ! ! Líklega
hafa bollarnir komið til Islands með kaffinu og þá fyrst
úr tini, það var minsta kosti ekki gott að drekka kaffi
úr öskunum; þó get eg ekkert sagt um þetta með vissu,
en einhverjir muna máske betur.
Siðir í kirkjunni á mínum yngri árum voru þeir: að
ef einhver gékk ú't um méssutíman, þá hneigði hann sig