Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Síða 81
ALMANAK 1916
7
Þeim hjónum búnaðist vei, þrátt fyrir þó að þau hefðu
stóra fjölskyidu er tímar liðu. Jón Þórarinsson var mað-
ur duglegur með afburðum og búhöldur hinn bezti; hann
var talinn karlmenni hið mesta þar í Þingeyjarsýslu, og
eru margar sögur þar um. Einnig var hann smiður góður
og bókbindari.
Þau Jón og Þuríður eignuðust 8 börn. Af þeim lifa
sex, öll hér vestan hafs: Mrs. G. Guðmundsson, gift Guð-
mundi Guðmundssyni, bónda nálægt Mountain, N. Dak.;
Þóra, skólakennari að Climax P. O., Sask.; Þórarinn,
bóndi að Amelia P. O., Sask. Hann er giftur Þorbjörgu
Gísladóttur Johnson. Sveinn og Magnús að Amelia, báð-
ir ógiftir, og Metúsalem, smiður í Winnipeg, giftur Sigríði
Ivatrínu Sigurrós dóttur Andrésar Davíðssonar.
Árið 1888 tók Jón Þorarinsson veiki þá sem leiddi
hann til bana. Leitaði hann sér lækningar heima á ætt-
jörðinni, en er það dugði ekki, fór hann til Skotlands og
var þar um tíma. En alt árangurslaust; hann dó í
Apríl 1891.
Lesarinn getur ímyndað sér ástæður ekkjunnar. Efn-
in voru nær því til þurðar gengin í þessum iangvarandi
sjúkdómi mannsins hennar. Hún sá engan möguleika að
koma börnunum á framfæri án þess að þiggja styrk, án
þess að verða hjálparþurfi. En það var henni um megn
að hugsa um. Hún afréði því að leita vestur um haf, þar
sem hún átti bróður og systur á lífi.
22. júní sama ár fór Þuríður frá Húsavik með 5
börnin, hið elzta á 13. ári en liið yngsta á 2. ári, ásamt með
allmörgum vesturförum. Magnús næstur því yngsta, varð
eftir hjá óðalsbónda Sigurjóni Jóliannessyni á Laxamýri,
sem sýndi það drenglyndi að taka liann til fósturs.
Sannorður maður hefir sagt, að á leiðinni vestur yfir
liafið, hafi vesturfararnir verið afar óánægðir. Alla vant-
aði eitthvað og allir fóru þeir til vesturfarastjórans,
Sveins Brynjólfssonar, sem þeim fanst að bæta ætti úr
öllum þeirra þörfum, sem hann gerði eftir megni. Varð
honum þá eitt sinn reikað inn í svefnklefa nokkurn.
Tvær ferðakistur voru á gólfinu og tvö rúm. í öðru var
ekkja með börnin sín fimm. Fjögur þeirra hjúfruðu sig