Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1921, Qupperneq 37
ALMANAK 1921
27
stórmerk og vel metin í sínu bygSarlagi. Einum af
hélztu mönnum bygSarinnar farast þannig orS um þau:
“Heimili þeirra hjóna er eitt af hinum mörgu myndar-
heimilum kringum Mountain. Þau eiga mörg og mynd-
arleg börn. Kristján er 'búmacSur góSur. Borgari í
bezta lagi; áreiSanlegur, tryggur og trúfastur öllum, sem
kynnast honum. Hann er og hefir veriS í fremstu röS
íslenzkra bænda í NorSur Dakota.”
Jón Eymundsson. Fæddur 25. desember 1850 í
KumblaVÍk á Langanesi. Dáinn 20. febrúar ] 90 7.
k oreldrar hans voru Eymundur Jónsson, SigurSssonar,,
er þar bjó lengi, og Steinunn Sveinsdóttir frá Kollavúk í
ÞistilfirSi. Fyrrikona Jóns var Júlíana Einarsdóttir frá
Fagranesi á Langanesit systir ÞorvarSar og Matúsalems
Einarssona á Mountain. Þau hjón fluttu vestur um haf
1878 og fóru til Nýja Islands; en ári síSar fluttu þau til
Dakota og tóku land á Öldunni suSvestur af bænum
Peiwbina, sem getiS er í þætti Kristjáns G. Kristjáns-
sonar. Bjó Jón þar til dauSadags. MeS konu sinni
Júlíönu eignaSist hann 6 'börn; 4 dóu ung. Fyrsta barn
þeirra fæddist á Atlantshafinu og dó í Winnipeg fáum
vikum síSar; tvö eru lifandi: Concordia, ógift, vinnur á
skrifstofu hveitiverzlunarfélags í Pembina; Kristbjörn,
nýútskrifaSur í læknisfræSi af læknaskóllanum í Chica.
go. Hann er kvæntur Oddnýju GuSjónsdóttur Stef-
ánssonar í Pembina. Fyrrikonu sína misti Jón 1888;
en kvæntist aíftur þrem árum síSar Krisbbjörgu Jóns-
dóttur, Benjamínssonar frá SySra-Lóni á Langanesi.
Hún er systir konu Kristjáns G. Kristjánssonar, sem fyr
er getiS, góS kona og vel metin.
Jón Eymundsson var einn af þeim fáu mönnum,
sem enginn hafSi neitt um aS segja nema gott. Hann
hafSi óiblandaS íslenzkt drengskapareSli; var mann-
kostamaSur og göfuglyndur.
Á fátæktar- og flækingsárum Islendinga hér, meS-
an þeir voru aS leita sér athvarfs og efnalegs sjálfstæS-