Afturelding - 01.04.1984, Page 8
Bækur Gamla
testamentisins
Fimmbókaritin Sögubækur Speki og Meiri Minni
1. Mósebók Jósuabók Ijóðmæli spámenn spámenn
(Genesis) Dómarabók Jobsbók Jesaja Hósea
2. Mósebók Rutarbók Sálmarnir Jeremía Jóel
(Exodus) 1. og 2. Orðskviðirnir Harmljóðin Amos
3. Mósebók Prédikarinn Esekíel Óbadía
(Leviticus) 4. Mósebók (Numeri) 5. Mósebók (Devter- onomium) l.og2. Konungabók l.og2. Kroníkubók Esrabók Nehemía Esterarbók Ljóðaljóðin Daníel Jónas Míka Nahúm Habakkuk Sefanía Haggai Sakaría Malakí
Það skýtur kanrtski skökku
við að rita inngang aö svo stuttri
grein sem þessari, en ég tel það
engu að síður nauðsynlegt, þó
ekki sé nema til að útskýra hvað
fyrir mér vakir.
Alltof margir láta sig litlu
varða innihald Biblíunnar og
uppbyggingu og álíkafjöldi hef-
ur enga eirð í sér til að sitja yfir
langlokum um þessi efni. Því
datt mér í hug, lesandi góður, að
þú nenntir e.t.v. að fylgja mér í
gegnum þessa stuttu grein og
kynna þér á skömmum tíma og
án mikillar fyrirhafnar, hvað
Biblían hefur að geyma.
Við skulum fyrst líta á upp-
setningu Gamla testamentisins
(Testamenti merkir Sáttmáli) og
láta Nýja testamentið bíða nœsta
blaðs.
Biblían er safn bóka sem skrif-
aðar eru af ólíkum mönnum á
ólíkum tímum. Bækurnareru 66
að tölu, þar af 39 í Gamla testa-
mentinu. Sögur Gamla testa-
mentisins hafa varðveist mann
fram af manni og kynslóð fram af
kynslóð. Áður en prentun kom
til sögunnar og þúsundum ára
fyrir uppgötvun myndlistar, var
eina leiðin til að muna atvik úr
fortíðinni, að varðveita þau í
munnlegri geymd. Heþrear
skráðu þessar munnmælasagnir
niður á eigið móðurmál og það
tók tugi manna þúsund ár að
fullgera á hebresku það sem við
þekkjum sem Gamla testament-
ið.
Fimmbókaritin
Gamla testamentið hefst á
Mósebókunum fimm (Pentatev-
kos) og greinir frá sköpun heims-
ins, Nóa-flóðinu og upphafsár-
um hebresku þjóðarinnar. í
þeim er greint frá lífi Abrahams
og afkomenda hans og bókunum
lýkur með dauða Móse.