Afturelding - 01.04.1984, Blaðsíða 31

Afturelding - 01.04.1984, Blaðsíða 31
f JónasS. Jakobsson f. 05.11.1909 d. 29.04.1984 Jónas S. Jakobsson, myndhöggvari, lést í Reykjavík 29. apríl síðastliðinn, 74ra ára að aldri. Jónas fæddist á Blönduósi og var son- ur þeirra hjóna Jakobs Lárussonar Berg- stad og Guðnýjar Ragnhildar Hjartar- dóttur. Hann var næst elstur tólf syst- kina. Þegar í bemsku komu fram hjá Jónasi listrænir hæfileikar og skilur hann eftir sig íjölda teikninga, ljóða og höggmynda sem væm sómi hverjum listamanni. Leiðbeinendur hans í höggmyndalist vom meðal annarra þeir Ríkharður og Einar Jónssynir og var .lónas síðasti nemandi Einars. Árið 1930 hélt Jónas utan til fram- haldsnáms við Listaháskólann í Osló og nam þar tvo vetur. Um það leyti verða straumhvörf í lífi hans. Hann frelsast og eignast afturhvarf til lifandi trúar og hélt það til dauðadags. í persónulegri umgengni var Jónas orðvar maður, háttvís og lagði aldrei öðmm illt til. Hann helgaði sig með lestri Biblíunnar og bænalífi. Margir sálmar hans prýða „Hörpustrengi," sálmabók Hvítasunnumanna og em sungnir af hundmðum við guðsþjón- ustuhöld. Eftirlifandi kona Jónasar er Guðbjörg Guðjónsdóttir frá Skaftafelli, dóttir Guð- jóns Hafliðasonar, skipstjóra og útgerð- armanns. Stóð hjónaband þeirra í nærri 49 ár. Eignuðust þau sjö böm og af þeim lifa sex föður sinn. Við æfilok Jónasar kveður Fíladelf- íusöfnuðurinn í Reykjavík einn af fmm- herjum sínum, sem bar byrðar og stóð í fylkingarbrjósti. Hann vann verk trú- boða og fullnaði þjónustu sína. Nú em honum geymd sigurlaunin heima hjá Drottni. Með virðingu, þakklæti og samúð. Einar J. Gíslason. Kveðja Nú fram er liðin frelsuð sál, sem friðsæl rækti bænamál. Sem hóf að ljóða um himininn, í helgri trú á Drottin sinn. í auðmýkt þrædd var ævileið, og æðrulaust var fullnað skeið. Hann lífgjöf þáði Lausnarans, sitt lífsstarf vann í nafni hans. í Jesú nafni, í Jesú trú, þín jafnan vinur, bæn var sú að hann þér veikum legði lið, sem líf þér gaf og hjartafrið. Guö blessaöi starfið — Framhaldafbls. 7 Ásmundi, hann var kátur en um leið traustur og fastur fyrir. Ásmundur var sístarfandí, honum féll aldrei verk úr hendi. Allan daginn var hann að sinna fólki og málum safnaðarins. Hann sat oft við skriftir, en fékk sjaldan næði. Síminn hringdi alveg miskunnarlaust, fólk vildi ráðfæra sig við hann um hin ólíklegustu málefni. Ásmundur bárust einnig ógrynni af bréfum, alstaðar að , hann var duglegur að svara bréfum,. Ég sé mikið eftir því að hafa ekki reynt að Jónas S. Jakobsson Hans lífsins orð var leiðsögn þín, það ljós sem ávallt fegurst skín. Þar birti Guð þér boðskap sinn, þar blasti við þér himininn. Nú laus þú ert frá líkamsþraut, þú lagðir allt í föðurskaut. Hann eilífð hefur opnað þér sem upprisan og lífið er. Vér þökkum vinur þína ást, og þína trú sem aldrei brást. Vér Guði þökkum gæsku og náð, í gæslu hans sé allt vort ráð. Jóhann Sigurðsson. gefa honum meira næði til skrift- anna, með því að bægja frá hon- um truflunum af völdum sím- hringinga og þess háttar. Ásmundur las afskaplega mik- ið, ef ekki gafst annar tími, þá notaði hann næturnar. Ef hann sá eithvað sem vakti sérstaka athygli hans þá varð það honum efniviður í blaðið. Svo var hann óþreytandi við sálmakveðskap og þýðingar, oft gafst best næði til þessánóttinni. Það er frá svo mörgu að segja, en hér látum við staðar numið um sinn. Texti: Guðni Einarsson.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.