Afturelding - 01.04.1984, Blaðsíða 24

Afturelding - 01.04.1984, Blaðsíða 24
,,Ég sá Jesú og læknaðist!” Eftir nokkurra vikna veikindi með háan hita, lagði ég leið mína til sjúkrahússins í Karl- skoga og fékk þar inni. Læknir- inn tilkynnti mér að ég skyldi ekki búast við Iækningu í fyrstu atrennu. Daginn eftir fór ég í rannsókn og þar var ég mænustunginn. Ég fann til gífurlegs sársauka og hélt að dagar mínir væru senn taldir. Allt var svo dimmt innra með mér og ég spurði Guð af hveiju ég þyrfti að lenda í þessu einmitt nú. Dagarnir Iiðu og ég var í stöð- ugri meðhöndlun. Ég kom boð- um til hvítasunnusafnaðarins í Degerfors og bað um fyrirbæn. Læknirinn spurði mig hvort ég vildi fara heim. Ég grét og fann að þarna var ég algjörlega ókunnugur. Læknirinn vitjaði mín daglega og spurði hvernig ég hefði það. Dag einn sagði hann mér að næstkomandi mánudag ætti ég að leggjast inn á heilsuhæli. Þá um kvöldið gerðist nokkuð dásamlegt. Ég lá endilangur í rúmi mínu og allt var svo rólegt. í kringum mig var allt bjart, bjartara en um hábjartan dag. Ég sá Jesú, Guðs son koma inn í herbergið. Hann var í hvítum fótsíðum klæðnaði. Hann gekk að rúmi mínu, nam staðar við hlið mína og leit í augu mín. Ég Ieit í augu hans. Hann rétti mér hægri hönd sína og í hendi hans var dökkt far naglans sem rekinn var í gegn á krossinum á Gol- gata. Hann lagði hendi sína á brjóst mér. Hár hans var dökkt og augu hans einnig. Hann stóð kyrr nokkra stund. Síðan sneri hann sér við og hvarf sýnum. Ljósið fylgdi honum. Eftirstuttan tíma sofnaði ég og vaknaði snemma næsta morg- uns. Ég var læknaður! Daginn eftir var farið með mig á rönt- gendeildina, því að læknamir „Höfuð Krists” eftir Rembrandt. vildu komast að raun um hvort ég væri læknaður. Þeir sýndu mér myndir sem teknar höfðu verið fyrir og eftir lækninguna. Á fyrri myndunum sást móta fyrir opnu sári, en á síðari mynd- unum var sárið algjörlega gróið. Jesús hafði raunverulega læknað mig. Yfirlæknirinn kom inn í fylgd hinna læknanna og sagði við mig. — Við sjáum ekkert athuga- vert við lungu þín, þannig að þú getur farið heim og hvílt þig í tvær vikur. Takk Jesús fyrir að þú hefur umhyggju fyrir mér! Nú er ég læknaður og svo glaður að ég gæti hlaupið um allt. Hinum mikla lækni, Jesú, sé heiður og lof um alla eilífð. Þýtt úr KS / M.Æ.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.