Afturelding - 01.04.1984, Page 14
Sam Daníel Glad:
Páskar —
Hvítasunna
„Þrisvar á ári skalt þú mér há-
tíð halda.
Þú skalt halda hátíð hinna
ósýrðu brauða. Sjö daga skalt þú
eta ósýrt brauð, eins og ég hefi
boðið þér, á ákveðnum tíma í
abíb-mánuði, því að í þeim
mánuði fórst þú út af Egypta-
landi.
Enginn skal koma tómhentur
fyrirmittauglit.
Þú skalt halda hátíð frumsker-
unnar, frumgróðans af vinnu
þinni, af því sem þú sáðir í akur-
inn.
Þú skalt halda uppskeruhátíð-
ina við árslokin, er þú alhirðir
afla þinn af akrinum.“
II. Mósebók23: 14—16
Ekki er langt síðan við héldum
páskahátíð. En hvers vegna
höldum við páska? Er það til
þess að fá nokkurra daga frí, til-
breytingu í mat, bregða sér á
skíðamót og þess háttar? Vissu-
lega tilheyrir það að menn geri
sér dagamun, en er það ástæðan
fyrir því að við höldum páska?
Sérhver hátíð á sitt upphaf.
Oft er það svo að menn eru að
minnast einhverra atburða. Séu
hátíðir mjög fomar vill stundum
gleymast hvert upphaflegt til-
efni þeirra var. Við finnum bæði
páskahátíðina og hvítasunnuna
á síðum Nýja Testamentisins og
einnig í Gamla Testamentinu.
Sumir vilja meina að páskarnir
séu jafnvel enn eldri en heimildir
Gamla Testamentisins og halda
því fram að hátíðin hafi verið
haldin í Kanaanlandi áður en
ísraelsmenn komu þangað.
Hvernig og hvers vegna sú hátíð
hefur verið, greinir menn á um.
Heimildir þar að lútandi eru
mjög takmarkaðar.
Frásagnir Biblíunnar af upp-
hafi páskahalds finnum við í
Mósebókunum og víðar.1 En
ísraelsmenn voru þá í ánauð í
Egyptalandi. Guð kom fram
með Móse sem átti að leiða lýð-
inn út af Egyptalandi til þess
lands er Guð hafði gefið Abra-
ham.
Móse hafði lært og numið
speki Egypta frá bamæsku allt til
40 ára aldurs. Dvaldi hann svo
önnur 40 ár í óbyggðum, var
hann þá kallaður af Guði og
gekk á fund Faraó.2 Áður en
fólkið fór á brott skyldi það taka
lamb og slátra því og eta og halda
daginn hátíðlegan kynslóð eftir
kynslóð.3 í Nýja Testamentinu
lesum við um það er Kristur
hafði boðað fagnaðarerindið, svo
var hann tekinn og krossfestur.4
Þetta var rétt fyrir páskahátíð
Gyðinga. Við sjáum samlíkingu
með Kristi og páskalambinu.
Þeir sem á Krist trúa losna úr
ánauð og þrældóm og hljóta
frelsi.
Á páskadagsmorgun reis
svo Kristur upp5 og páskarnir
urðu upprisuhátíð Frelsarans.
Lærisveinar Jesú fóm nú einnig
að koma saman fyrsta dag vik-
unnar og minntust þannig upp-
risu Jesú. Þess vegna er það sem
kristnir menn halda helgan
fyrsta dag vikunnar.
Jesús var með lærisveinum
sínum í 40 daga þar til hann steig
upp til himins og englarnir
sögðu að Hann kæmi aftur með
sama hætti og hann fór. Þeirrar
endurkomu bíðum við. En er
Sam Danfel Glad lauk
námi frá Biblíuskólan-
um IBTI, í Englandi,
árið 1974. Hann er nú
aðstoóarforstöóumaö-
ur Ftladelfíusafnaðar-
ins í 'Keykjavík.