Afturelding - 01.04.1984, Blaðsíða 16
Matthías Ægisson:
LeTtTn að
orkTnnT
Er leifarnar af „Örkinni
hans Nóa“ að finna í hlíðum
Araratsfjalls í ausíurhluta
Tyrklands? Margir hafa velt
þessari spurningu fyrir sér í
gegnum aldirnar og sýnist
sitt hverjum. Þrátt fyrir að
margsinnis hafi verið lagt á
fjallið í þeim tilgangi að
leysa þessa gátu, hefur enn
ekki tekist að koma fram
með nógu áþreifanlegar
sannanir fyrir tilveru arkar-
innar að sannfæra megi
jafnvel hörðustu efasemdar-
menn. Þó hefur ýmislegt
komið fram sem hefur gefið
þessum grun byr undir báða
vœngi og verður hér reynt að
tœpa á því helsta.
Hvar „s(randaði“ örkin?
í 1. Mósebók er greint frá því
að örkin hafi numið staðar á
Araratfjalli og er „strandið“ ekki
staðsett nánar. í „Septuagint“,
grískri þýðingu Gamla testa-
mentisins, er „Ararat“ einfald-
lega þýtt sem „Armenía." Hið
forna mál Assýríumanna notar
„Urartu" (Ararat) yfir landsvæði
sem Armenía dagsins í dag telst
hluti af og þar er sannarlega mjög
hátt fjall (ca. 5.000 metrar) og
snævi þakið — Ararat.
Fyrstu skriflegu hcimildir
Elst varðveittra heimilda þar
sem getið er raunverulegrar stað-
setningar arkarinnar, kemur frá
Berossus, babýlonskum sagn-
fræðingi sem uppi var á 3. öld
fyrir Krist. Hann segir m.a. að
hluti arkarinnar sé staðsettur á
Araratfjalli og að fólk skrapi
tjöru af fjölum hennar og noti
sem verndargripi.1
Árið 1670 lagði hollenskur
pílagrímur leið sína á fjallið í leit
að örkinni hans Nóa. Hitti hann á
leið sinni einsetumunk sem sagði
honum að hann hafði búið í örk-
inni.2
Árið 1896 kvaðst indíáni
nokkur hafa klifið Araratfjall og í
þriðju tilraun uppskorið árangur
erfiðis síns er hann stóð and-
spænis örkinni, þar sem hún lá í
klettaskör, að hálfu hulin í snjó
og ís. Margir voru þó til að bera
1) The People’s Almanac, bls. 732.
2) T.P.A., bls. 732.
brigður á sannleiksgildi þessarar
frásagnar.3
Þegar armeníumaðurinn
George Hagopian var tíu ára
fékk hann að fara með afa sínum
í átta daga göngu upp að hinum
„heilaga bát.“ Þar hjálpaði afi
hans honum upp í farkostinn. Nú
þegar Hagopian er kominn á ní-
ræðis aldur, getur hann enn lýst
bátnum í smáatriðum og kemur
lýsing hans í öllum aðalatriðum
heim og saman við lýsingu Biblí-
unnar á örkinni hans Nóa.4 El-
fred Lee hefur teiknað mynd eftir
lýsingu gamla armeníumannsins
og er hana að finna á þessari
opnu.
Síðla sumars 1916, á dögum
fyrri heimsstyrjaldarinnar, flaug
3) T.P.A., bls. 732.
4) H.V., bls. 12.