Afturelding - 01.04.1984, Page 22
Innlendar fréttir — Innlendar fréttir — Innlendar fréttir — Innlendar fréttir
Sigfús B. Valdimarsson skrifar
um Salem-Sjómannastarfið á
ísafirði.
„Þakkið Drottni því að hann er
góður“ (Sálm. 106.1) Undir þessi
orð Davíðs vil ég taka, þegar ég horl'i
yfir liðið ár og hugsa til sjómanna-
starfsins. Það er dásamlegt hvemig
þetta gengur. Ég vil þakka Guði fyrir
þá náð að gefa mér heilsu og styrk til
að fara um borð í skipin i hvaða
veðri sem er og fyrir að hafa fengið
að ná til svo margra með fagnaðar-
erindið sem dagbókin ber vitni um,
þ.e.a.s. fólks frá 25 þjóðlöndum, sem
skiptir þúsundum. Gefnar voru 5
Biblíur, 45 Nýja testamenti, og 20
Passíusálmar. Aðrir fengu svo
smærri hluta af Ritningunni eða
smárit.
Jólapakkar til sjómannna voru
heldur færri en stundum áður, eða
um 200 stykki. Þar af 76 til erlendra
sjómanna. Hafa margir sagt mér að
það veki óskipta gleði og sérstaka
jólastemmningu, enda fylgir líka
hverjum pakka ritningarorð til um-
hugsunar fyrir viðtakanda.
Ég bið Guð að launa öllum þeim,
sem á einn eða annan hátt styðja sjó-
mannastarfið. Guð blessi og varð-
veiti sjómennina og gefi oss öllum
náð til að finna hversu lítil við erum,
en þó styrk og örugg ef við leyfum
Jesú að stýra lífsfleyi okkar.“
☆
Vitfyrring
Afturelding hefur aflað sér upplýs-
inga hjá Áfengis- og tóbaksverslun
Ríkisins um áfengis- og tóbaksneyslu
Islendinga síðustu tvö ár.
Á síðasta ári drukku íslendingar
áfengi fyrir 985.810.309 krónur
(níuhundruð áttatíu og fimm
milljónir áttahundruð og tíu þúsund
þrjúhundruð og níu krónur) og er
það um 157% aukning frá árinu
áður. Á sama tíma eyddu íslendingar
í tóbak 777.158.686 krónum (eða
sjöhundruð sjötíu og sjö
milljónum eitthundrað fímmtíu og
átta þúsund sexhundruð áttatíu og
sex krónum) og er það heldur meiri
aukning eða í kringum 158%. Sam-
tals hafa því fslendingar á síðasta ári
drekkt og brennt peninga að upp-
hæð krónur 1.762.968.995 eða
EINN MILLJARÐUR SJÖ-
HUNDRUÐ SEXTÍU OG TVÆR
MILLJÓNIR NÍUHUNDRUÐ-
SEXTÍU OG ÁTTA ÞÚSUND
NÍUHUNDRUÐ NÍUTÍU OG
LIMM KRÓNUR!
„Og svo er þeirri firru haldið fram
að íslendingar séu greint fólk. Eftir-
farandi dæmi gefa okkur aðeins
gleggri mynd af þeim tölum sem hér
um ræðir.
Fyrir áfengis- og tóbakskaup
landsmanna 1983 hefði mátt kaupa:
1175 þriggja herbergja íbúðir
(hver íbúð áætluð á krónur
1.500.000.-) 23—24 þyrlurtil Land-
helgisgæslunnar (einingaverð áætlað
75.000.000.-) 85.581.019. mjólkur-
litra (áttatíu og fimm milljónir
fimmhundruð áttatíu og eitt þúsund
og nítján lítra.) Ef mjólkurhymun-
um væri staflað hverri ofan á aðra
spönnuðu þær vegalengd sem sam-
svarar hringveginum kringum land-
ið, ekki einu sinni, ekki tvisvar, held-
ur liðlega MILLJÓN SINNUM!
Þrátt fyrir þessar óhugnanlegu töl-
ur eru það áhrif og afleiðingar þessa
böls sem eru ógnvænlegastar. Fjöl-
skyldur eru í uppnámi. Böm og kon-
ur sæta misþyrmingum. Fólk ekur
ölvað undir stýri og veldur sjálfu sér
og öðrum óbætandi tjóni og oft
dauða. Fjölskyldur splundrast, vin-
imir hverfa og þeir sem eftir
sitja lenda oft inni á meðferðarstofn-
unum eða i fangelsi og eiga þaðan
aldrei afturkvæmt.
En er þá engin von? Jú, mitt í öllu
myrkrinu skín Ijós og það ljós er
Jesús Kristur. Það ertil fólk á íslandi
sem snýr sér til hans og hafnar alfar-
ið að taka þátt í þeirri vitfyrringu
sem áfengis- og tóbaksbölið er. Og
svo er það þetta fólk sem er talið vit-
firrt! Grátlegt en staðreynd engu að
síður.
Innlendarfréttir — Innlendarfréttir — Innlendarfréttir — Innlendarfréttir