Afturelding - 01.04.1984, Page 23
Innlendar fréttir — Innlendarfréttir — Innlendar fréttir — Innlendar fréttir
Innlendarfréttir— Innlendarfréttir — Innlendarfréttir — Innlendarfréttir
Á heimleið
Eins og fram kom í síðasta tölu-
blaði er Hafliði Kristinsson, ungur
safnaðarmeðlimur, um þessar
mundir að útskrifast með Magister
próf í Guðfræði frá Central Bible
College í Bandaríkjunum. Hann fór
utan fyrir þrem árum ásamt konu
sinni, Steinu og bömum þeirra
tveim, Guðrúnu og Styrmi. Er hann
kemur heim mun hann hafa umsjón
með starfi Hvítasunnumanna í
Breiðholti sem hefur aðsetur sitt að
Völvufelli 11. Hafliði og fjölskylda
eru væntanleg heim í júlí.
Víða er potturinn brotinn
í morgunblaðinu birtist nýverið
grein þar sem fram kemur að konur
á íslandi eru fómarlömb barsmíða í
ríkara mæli en þekkist nokkurs stað-
ar.
Sigurjón H. Ólafsson lektor hefur
unnið að rannsóknum á andlitsbein-
brotum sjúklinga á sjúkrahúsum í
Reykjavík frá 1970—1979. í athug-
un hans kemur m.a. fram að:
Líkamsárásir og barsmíðar ollu
46% allra kjálkabrota hjá konum á
þessum árum og á slíkt sér enga hlið-
stæðu í öðrum löndum. Yfir 90%
tilfella þar sem um andlitsbeinbrot
var að ræða vegna barsmíða, var
áfengi með í spilinu.
Hvert stefnum við? Er þetta það
veganesti sem við viljum gefa böm-
um okkar inn í framtiðina? Heilög
ritning segir, er hún talar um efstu
tíma: „Og vegna þess aö lögleysi
magnast, mun kœrleikur flestra
kólna“ (Matteus 24:12). Biblían
hvetur okkur til að keppa eftir kær-
leikanum og ennfremur: ,,Gcetið
þess, að enginn gjaldi neinum illt
með illu, en keppið ávallt eftir hinu
góða, bœði hver við annan og við alla
aðra“( 1: Þess. 5:15).
Betel, Vestmannaeyjum
1. maí síðastliðinn var haldinn al-
mennur safnaðarfundur í Betel,
Vestmannaeyjum og var Snorri Ósk-
arsson kjörinn forstöðumaður safn-
aðarins. Snorri er sonur hjónanna
Óskars M. Gíslasonar og Kristínar J.
Þorsteinsdóttur sem hafa verið með í
hvítasunnusöfnuðinum frá unglings-
árum.
Snorri Óskarsson
Á fundinum var einnig rætt um
tekjur safnaðarins og kom fram að
tíund gerði vart meira en að standa
undir daglegum rekstri safnaðar-
starfsins. Þó var ákveðið að greiða
nýkjömum forstöðumanni hálf
kennaralaun. Síðan þá hafa tíundar-
greiðslur tvöfaldast og blessun
Drottins fylgt með.
í vetur var íbúðinni í safnaðarhús-
inu breytt í samkomusal og þar verð-
ur hægt að bjóða upp á margskonar
starf fyrir söfnuðinn. Salurinn hefur
þegar verið tekinn í notkun fyrir
unglingastarf og safnaðarfundi.