Afturelding - 01.04.1984, Blaðsíða 27
tLENDAR FRÉTTIR —
mörg hundruð manns skírðust í heilög-
um anda. Bonnke segir eftir heimsóknina
til Uganda að þar séu criiðir límar og fá-
tækt mjög mikil.
KS584
Mikill vöxtur í EI Salvador
Hvítasunnuhreyfingin í E1 Salvador
hefur vaxið ört síðustu árin. Á síðustu
fimm árum hefur meðlimaljöldinn, þar
með taldir þeir sem frelsast hafa, en bíða
eftir skím, vaxið úr 30000 í 80000.Mikil
kraftaverk hafa gerst og margir vaknað til
lífs í Guði við að sjá hann starfa þannig í
söfnuðinum. Alls eru starfandi í E! Salva-
dor á vegum Assemblics of God samtak-
anna um 780 söfnuðir og er meðlima-
fjöldi hvers safnaðar um sig að meðaltali
100 manns. Hjá stærsta samfélaginu
sækja um 22000 manns samkomur á
hverjum sunnudegi.
KS584
Flestir hvítasunnumenn í
Rúmeníu
Ef miðað er við fólksljölda, eru fleiri
hvítasunnumenn í kommúnistaríkinu
Rúmeníu en í nokkru öðru landi í heim-
inum. Þar eru í dag í kringum 900 hvíta-
sunnusöfnuðir og meðlimaljöldi er vel
yfir 250000 manns. Safnaðar- og bæna-
hús eru ætíð yfirfull. Hver söfnuður má
aðeins starfa 15 klukkustundir vikulega
og er sá tími notaður til hins ýtrasta til að
safnast saman í húsi Drottins.
KS384
ALDRAÐIR
þurfa að
ferðast eins
og aðrir.
Sýnum þeim
tillitssemi.
IUMFERDAR
RÁO
^ENDAR FRÉTTIR —
VITNISBURÐUR — VITNISBURÐUR
Agnes H. Konráðsdóttir:
„Því að svo
elskaði
Guð heiminn...”
Sumarið 1983 fór ég í sveit á
ísafirði. Á meðan ég var þar,
skrifaðist ég á við vinkonu mína
í Hvítasunnusöfnuðinum. Hún
sagði mér að það væri mót í
Kirkjulækjarkoti yfir verslunar-
mannahelgina. Ég hugsaði svo-
lítið urn það og skyndilega fann
ég að mig langaði til að fara á
mótið.
Og ég fór og ég hef svo sannar-
lega ekki séð eftir þeirri ferð.
Það er vegna þess að Jesús snart
virkilega við mér á þessu móti
og sýndi mér að hann elskar mig
svo mikið, að hann gaf líf sitt á
krossi fyrir rnig til að ég gæti
eignast eilíft líf.
Jóh. 3:16: ,,Því að svo élskaði
Guð heiminn, að hann gaf son
sinn eingetinn, til þess að hver
sem á hann trítir, glatist ekki
heldur hafi eilíft líf.“
Og þú kæri vinur, sem lest
þetta, varpaðu þessu frelsi ekki
frá þér, þessu líl'i friðar og kær-
leika sem Jesús gefur þér. Þú
getur ekki fengið það frá öðrum,
þú i'ærð það aðeins fyrir Jesúrn
Krist.
Jesús dó líka fyrir þig, til að
þú gætir fengið fyrirgefning
syndanna og átt eilíft líf í trúnni
á Jesúm Krist. Jesús elskar þig
og þráir að þú konrir til sín. Þú
sérð aldrei eftir því ef þú velur
að fylgja Jesú. Hann er það eina
senr gefur lifinu gildi, og hann
segir: „Ég mun vera með yður
alla daga, allt til enda veraldar, “
og: „Sá sem á mig trúir, mun
lifa, þótt liann deyi. Jes. 53:5.
Róm. 10:9.
Drottinn blessi þig, lesandi
nrinn.
Agnes H. Konráðsdóttir
VITNISBURÐUR — VITNISBURÐUR