Afturelding - 01.04.1984, Side 30
MflíMM®
Missti af flugvél—
Framhald afbls. 5
ist trausts verður, tók ég boði
hans. Hann reyndist mér í alla
staði vel og eftir á að hyggja
finnst mér hann hafi verið eins
og af Guði sendur mér til hjálp-
ar.
Daginn eftir mætti ég aftur í
flugafgreiðsluna og nú kom ég
tímanlega. Hjá BEA flugfélaginu
var farþegum úthlutað sætum,
ekki leist mér á blikuna þegar ég
sá að mér var skipað í sæti nr. 13!
Þcgar ég gekk um borð í flugvél-
ina sá ég að í miðri flugvélinni
var tveim sætaröðum fyrirkomið
gegnt hvorri annarri, þannig að
tólf sæti mynduðu eins konar
hring. í þessum hring var sæti 13.
Þarna var fyrir hópur af ungu
fólki og ég heyrði að það talaði á
íslensku. Ég tók cftir að þau báru
barmmerki sem á stóð: JESÚS
LIFIR. Ég gaf mig á tal við þau
og komst að því að þetta voru
ungmenni í Fíladelfíusöfnuðin-
um í Reykjavík og voru að koma
af kristilegu móti í Englandi.
Þau vitnuðu fyrir mér og buðu
mér að koma á unglingasam-
komu næsta miðvikudag. Ég
þáði boðið og það varð mér til
mikillar blessunar. Upp frá því
fór ég að sækja þessar unglinga-
samkomur. Ég fékk náð til að
iðrast synda minna og taka á
móti Jesú i líf mitt á ný. Ég fékk
að reyna fyrirgefningu hans og
kærleika, hann varpaði syndum
mínum í gleymskunnar haf.
Þessi viðburðaríka atburða-
rás hófst með því að lítill miði
datt út úr Biblíunni minni. Ég
velti því mikið fyrir mér hvernig
hann hefði komist í Biblíuna,
fyrst hélt ég að móðir mín hefði
sett hann þar, en þegar heim
kom komst ég að því að faðir
minn hafði verið beðinn um að
lesa ritningarorð við sjómanna-
guðsþjónustu. Vegna þess hve
letrið var smátt í Biblíunni, vél-
ritaði hann textann og geymdi í
bókinni.
Þegar ég rifja þessa atburði
upp sé ég það sem svar Guðs við
bæn minni að ég missti af flug-
vélinni, hitti þennan hjálpsama
starfsmann sem útvegaði mér far
með BEA og að mér var úthlutað
sæti 13 hjá ungu trúuðu fólki.
Mér finnst svo stórkostlegt að sjá
hvernig Guð raðaði þessum at-
vikum saman og gat notað það,
sem mér fannst erfitt og neikvætt
til blessunar í lífi mínu. Hann
svaraði bæn minni út í æsar.
í dag á ég frið við Guð. Hann
hefur gefið mér trúaðan mann og
tvö yndisleg börn. Ég er eins
hamingjusöm og hægt er að vera.
Ég vil hvetja þig, sem lesið hefur
þennan vitnisburð minn, að
fylgja Jesú Kristi og gefa líf þitt
honum. Þú skalt biðja Guð að
mæta þér og hjálpa og þú munt
fá að reyna að hann svarar bæn.
Biddu Guð að leiða þig til samfé-
lags við lifandi trúað fólk, það er
mjög mikilvægt. Biddu Guð að
hjálpa þér að lesa Biblíuna og
opna þér hana, lestu Guðs orð.
Þú munt fá að reyna hið stór-
kostlega, að Guð heyrir hæn.
Guðfinna Helgadóttir
Leitin aðörkinni —
Framhaldafbls. 18
og bíða spenntir eftir því að
sannleikurinn um örkina megi
opinberast og verða þannig Guði
til dýrðar og sköpun hans til
frelsis og vegsemdar.
Leitin heldur áfram. James
Irwin, geimfarinn heimskunni,
hefur nýverið gert tvær mis-
heppnaðar tilraunir til að leysa
gátuna um afdrif arkarinnar. En
hann er ákveðinn í að reyna í
þriðja sinn. E.t.v. tekst honum þá
að finna óyggjandi sannanir fyrir
tilveru hennar. Þangað til liggur
leyndardómur arkarinnar graf-
inn í hlíðum Araratsfjalls.
M.Æ.
Heimildir:
Doomsday 1999: C. Berlitz, bls. 184; 190.
Hemmets Van: 2.84, bls. 12.
Livets Gang: 2.84, bls. 13.
The People’s Almanac, bls. 731—733.
AFTURELDING
51. árgangur 2. tbl. 1984
Útgefandi: Blaða-og bókaútgáfan, Hátúni 2, 105 Reykjavík.
Sími 91-20735/25155 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Einar J.
Gíslason Blaðamaður: Matthías Ægisson. Setning og
prentun: Prentstofa G Benediktssonar. Uppsagnir miðast
við áramót. Vinsamlegast tilkynnið breytingar á áskriftum og
heimilisfongum til skrifstofunnar. Árgjaldið er 350 krónur.
Ég óska eftir að gerast áskrifandi að
AFTURELDINGU
Nafn -----------------------------
Heimili -----------------------—
Póstnr. ----------------Póststöð -
Hönnun forsiðuleturs: Guðjón Hafliöason
Forsiðumynd: Gisli Óskarsson.