Afturelding - 01.12.1986, Síða 26
Sigfús B. Valdimarsson
Sjómannastarfið
á ísafirði
1986
„Komið og fylgið mér, og ég
mun gjöra yður að mannaveið-
urum.“ (Matt. 4:20). Þannig tal-
aði Jesús til fiskimannanna við
Galileuvatnið forðum. Símon og
Andrés hlýddu kalli hans og
fylgdu honum. Þeir hlýddu á orð
hans, sem voru „andi og líf.“
(Jóh. 6:63). Hann sagði: „Ég er
ljós heimsins, hver sem fylgir
mér, mun ekki ganga í myrkr-
inu, heldur hafa ljós lífsins."
(Jóh. 8:12). Lærisveinar hans
hafa í gegnum aldir haldið þessu
ljósi uppi, svo aðrir mættu sjá
það og njóta leiðsagnar þess.
„Hver sem elskar mig, mun
varðveita mitt orð.“ (Jóh.
14:23). Davíð konungur í ísrael
sagði: „Þitt orð er lampi fóta
minna, og ljós á vegi mínum.“
(Sálm. 119:105). Sjómenn vita
hvers virði vitar eru og öll um-
ferðarljós, hvort sem þau eru á
sjó eða landi. Það þarf allt að
vera í lagi, og þess er krafist að
farið sé eftir þeim í öllu, annars
er voðinn vís.
Salem Sjómannastarfið hefur
leitast við að beina þessu ljósi til
sjómanna og annarra sem á vegi
hafa orðið um 40 ára skeið.
Guðs orð hefur ævinlega blessun
í för með sér, til þeirra sem vilja
tileinka sér þau fyrirheit, sem
Guð gefur. Guð bregst aldrei
orði sínu. „Þitt orð er Guð, vort
erfðafé. Þann arf vér bestan feng-
um.“ (H.H.) „Sælir eru þeir, sem
heyra Guðs orð og varðveita
það.“ (Lúk. 11:28).
Starfið hefurgengið með svip-
uðum hætti og undanfarin ár.
Orði Guðs hefur verið sáð til
fólks al'40 þjóðernum, svo af því
sést að akurinn er nokkuð stór.
Gefnar voru 40 Biblíur, 60 Nýja
testamenti, 40 Passíusálmar og