Afturelding - 01.12.1986, Blaðsíða 27
SALEM
Hvítasunnukirkjan Salem á ísafirði.
►
40 snældur með söng og vitnis-
burði um Jesú. Aðrir fengu
smærri biblíuhluta hver á sínu
máli. Farið var um borð í um
300 íslensk skip og báta og 130
erlend. Nokkrum sinnum voru
hafðar guðræknisstundir um
borð og sýndar kristilcgar vídeó-
spólur. Jólapakkar urðu að
þessu sinni 305, liðlega helming-
ur var til erlendra sjómanna.
Auk þess voru sendar jólakveðj-
ur og blöð til 27 skipa og vita-
varðanna á Horni og Galtarvita.
Hinnig voru á árinu send blöð á
hvert sveitaheimili í sýslunni.
Eg er þakklátur öllum, senr á
einn eða annan hátt hafa stutt
starfið eða sýnt því viðurkenn-
ingu. Ég bið Guð að launa ríku-
lega kærleika þeirra og fórnfýsi.
Ég get ekki annað en nefnt fær-
eyska skipafélagið Smyril Line,
sem í þriðja sinn bauð okkur
hjónunum far með skipi sínu
Norröna til Færeyja og Noregs.
Var það mjög ánægjuleg ferð,
sem gaf okkur tækifæri til að
vera á sumarmóti hvítasunnu-
manna á Hamar í Noregi, þar
sem mörg þúsund manns voru
saman komin í viku til þess að
lofa Drottin og uppbyggjast í
samfélaginu við hann. Þarna
voru m.a. kristniboðar frá 30
löndum. Þaðan fórum við svo til
Svíþjóðar og heimsóttum í ann-
að skipti vini okkar á trúboðs-
skipinu ELIDA, þar sem við
vorum í fjóra daga. Það er sér-
stök upplifun að kynnast þessari
starfsgrein í víngarði Droltins. í
allri ferðinni var útbýtt kristileg-
um smáritum í þúsundatali á
mörgum tungumálum. í þessum
löndum nutum við gestrisni og
vináttu margra góðra vina.
Það er rnikil náð að fá að
gegna þessari þjónustu meðan
Guð gefur nrér heilsu og krafta
til þess. Þörfin er mikil og við-
tökurnar hjá sjómönnunum eru
frábærar, svo ég er viss uin að
Orðið ber ávöxt í hjörtum
rnargra. Hef ég reyndar sannanir
fyrir því. Hinar mörgu vina-
kveðjur víðs vegar að bera líka
vitni um það. „Guði séu þakkir,
senr gefur oss sigurinn l'yrir
Drottin vorn Jesú Krist.“ (1.
Kor. 15:57). Orð Jesú, „komið
og fylgið mér“ hljómar enn í
dag. Hann kallar á mig, hann
kallar á þig. Guð gefi hverjum
þeim senr heyrir náð til að hlýða
kallinu. „Hver senr eyra hefir,
hann heyri.“ (Op. 3:6).
Guðs náð og blessun hvíli yfir
sérhverjum sæfaranda, yfir landi
okkar og þjóð.