Afturelding - 01.12.1986, Page 31
Síl
Einn nýr fornleifafundur hef-
ur vakið sérstaka athygli yfir-
valda í Mið-Austurlöndum, til
jafns við fornleifafræðinga. Það
er varðandi hið löngu týnda
Musteri í Jerúsalent. Samkvæmt
Biblíunni var það bústaður
Guðs. Salómon lét byggja það
um 950 f.Kr. Þótt Babyloníu-
menn hafi rifið það niður 586
f.Kr. var það endurreist og var
miðdepill tilbeiðslu Gyðinga
þangað til Rómverjar rifu það
endanlega niður árið 70 e.Kr.
Öldum saman trúðu Gyðingar
að ekki væri hægt að komast að
musterinu vegna þess að það var
talið liggja undir helgustu bygg-
ingu múhameðstrúarmanna,
Klettamoskunni, sem breiddi sig
yfir keppinaut sinn, helgistaðina
á Musterisfjallinu í Jerúsalem.
Vísindamaðurinn Asher
Kaufman birti samt nýlega nið-
urstöður tíu ára rannsókna, sem
sýna að Musterið stóð 380 fetum
utan við moskuna.
Þar, undir opinni, alda gam-
alli hvelfingu múslima fann
Kaufman „Hornsteininn,“ stað-
inn í hinu allra helgasta, þarsem
ritningarnar segja að sáttmáls-
örkin hafi verið geymd. Lykill-
inn að fullyrðingu Kaufmans
eru vatnsgeymar neðanjarðar og
þyrpingar náttúrlegra steina sem
til forna höfðu verið höggnir til
að falla inn í veggi þar sem vant-
aði í Musterið. Kaufman byrjaði
á að rannsaka þessa fornleifa-
fundi og bera santan við ná-
kvæma lýsingu á Musterinu í
hinum fornu Talmud trúarrit-
um. Hann gerði þúsundir mæl-
inga til þess að finna út hvar
byggingin hlyti að hafa staðið.
Þessar rannsóknir hafa valdið
yfirvöldum bæði múslima og
Israelsmanna áhyggjum. Þeir
óttast að fregnir um uppgötvun-
ina gætu dregið að fjölda æstra
pílagríma og vakið deilur um
yfirráð yfir Musterisfjallinu.
Múslimar, sem hafa nú þegar
yfirráð yfir staðnum, hafa orðið
fyrir ásökunum af fornleifafræð-
ingum um að flytja mikilvæg
sönnunargögn úr uppgreftrin-
um.
The Flame, no.6, 1984.
— Þýtt GM
„Austur-Vestur“ ráðstefna í Svíþjóð
Dagana 24.-27. febrúar verður haldin í tíunda
sinn svonefnd „Austur-Vestur“ ráðstefna. Það er
Fíladelfíukirkjan í Jönköbing sent stendur fyrir
ráðstefnunni.
Síðast var ráðstefnan haldin í samvinnu við Hvíta-
sunnumenn í Ungverjalandi og var haldin
í Búdapest.
Til þessara ráðstefna er boðið trúbræðrum frá
Austur-Evrópu og gefst þeim þar kærkomið tæki-
færi til að tjá sig opinskátt í samtölum við fólk frá
Vestur-Evrópu.
Þeim, sem áhuga hafa á að sækja mótið, er bent á
að skrifa til
Fíladelfia
East- fVest
Box 620
S-551 18 Jönköbing
Sverige
Vikuna eftir er haldið fjölmennt mót fyrir sænska
trúboða og kennimenn, svo hægt er að slá tvær
flugur í einu höggi.
AFTURELDING
53. árgangur 5. tbl. 1986
Útgefandi: Fíladelfia-Forlag, Hátúni 2,105 Reykjavik.
Sími: 91-20735/25155. Ritstjóri og ábyrgöarmaður: Einar J.
Gislason, simi 91-21111. Setning og prentun: Prentstofa G.
Benediktssonar. Uppsagnir miðast við áramót. Vinsamlegast til-
kynnið breytingar á heimilisföngum og áskriftum til skrifstofunn-
ar. Árgjaldið er 650 krónur.