Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1960, Síða 34

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1960, Síða 34
34 ALI»ÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR Teflt við æg i Framhald ai bls. 31. I sömu svipan voru bæði ílöggin dregin niður, en þriðja ílaggið dregið upp í þeirra stað, vestan til í þorpinu. Vissu nú allir, að al- ófært var talið inn úr sundinu. Og áttu skipin, sem fyrir utan voru, að leita til annarrar hafnar, ef unnt var. En þessu var ekki allt- af hlýtt, og hafði stundunr orðið slys af. — Það vantar ekki nema Sæfar- ann og Elliða, lieyrði Gréta nú að einhver sagði. Elliði var skip Kára. Hún klifraði upp á sjógarðinn og bar hönd yfir augu. Brimið var orðið ægilegt. Sundið tók alveg af með köflum, en lægði þó á milli. Grétu sýndust einhverjir dökkir deplar vera á hreyfingu fyrir utan brimgarðinn. En nú sá hún ekk- ert. — Kári. — Henni fannst hún hrópa nafn hans hástöfum, og þó sagði hún víst ekki neitt. Hún var aftur horfin á klettasylluna í tunglsljósinu. — Kysstu mig, sagði Kári. En hún þorði ekki að kyssa hann. Hún ætlaði burt frá honum, af jrví að hún vildi ekki verða fá- tæk sjómannskona. — Víst vildi hún Jiað. Ef hún fengi nú aldrei framar að sjá Kára. Þá var allt búið. Nú vissi hún það. — Guð minn góður, hjálpaðu þeim, andvarpaði lnin hvað eftir annað. Hjálpaðu Jreim. Þá skal ég vera kyrr hjá Kára og alltaf vera góð og dugleg. Og hún liélt áfram að gera samninga við drottinn. Hann var áreiðanlega með Kára og Jtessu plássi, sem hún hafði ætl- að að liefja sig yfir. Þessar ógnir stöfuðu sjálfsagt af því. — Æ, Jjetta var vitleysa. En hún vildi vera kyrr heima, af því að hún elskaði Kára og gat ekki hugs- að sér lífið án hans. — Þeir liljóta að leggja frá, sagði flaggvörðurinn, Sigurður gamli í Götu. — Það er óðs manns æði að ætla sér að lenda hérna úr Jjessu. Ég veit heldur ekki til hvers er verið að setja lög og reglur, ef allt er haft að engu. — Já, Jrví segi ég Jrað sem ég segi, tók gömul kona undir. — Guð hjálpi mönnunum. Nú kom Geiri á Bakka hlaup- andi eftir sjógarðinum með sjón- auka í hendnni og staðnæmdist skammt frá Grétu. Þau voru gaml- ir leikfélagar og kunningjar. — Sæfarinn er að leggja á sund- ið, sagði hann hróðugur yfir því að sjá betur en aðrir. Þeir fá gott lag og honum gengur ágætlega. Honum var órótt. Eftir alllanga stund kom risinn að hraunjaðrin- um. Gekk hann upp og niður af mæði og var þreyttur mjög. Réðst bóndi þegar að honum. Er hann sveiílaði sveðjunni og sá blika á hana, óx lionum ásmegin. Ekki var allt aíl Jarotið úr æðum risans. Var Jretta bæði harður leikur og langur, en Jtó fór svo að bóndi felldi ris- ann. Var hann svo Jrjakaður eftir viðureignina að hann gat sig hvergi hreyft. Er hann hafði jafnað sig dysjaði hann risann þarna við hraunjaðarinn. Og heitir Jsar síð- an Ögmundardys og hraunið Ög- mundarhraun. Má enn þann dag í dag sjá Ögmundardys við vegarend- ann í Ögmundarhrauni. Er bóndi kom lieim voru heldur en ekki fagnaðarfundir á Vigdísar- völlum. Af Guðrúnu er það að segja að hún giftist skömmu síðar og lifði við gæfu og gengi allt sitt líf. Og lýkur svo Jjessari sögu. — En Elliði, spurði Gréta og færði sig nær honurn. — Hann bíður eftir l.agi, sagði Geiri og var hinn hressasti. — Heldurðu, að Jreir hafi Jrað, Geiri? Gréta Jtreif í liandlegginn á Geira og leit á hann bænaraugum. — Hafi Jrað. Jú, Jtað er vonandi. Kári er einhver snjallasti formað- urinn hérna, Jrótt hann sé lang- yngstur. — En brimið er orðið svo ægi- legt, sagði Gréta. — O, nokkuð svo, sagði Geiri. — Það hlýtur að vera spennandi að fara inn úr, Jregar búið er að flagga frá. Og unga sjómannsefnið horfði glampandi augum út á hafið. — Sæfarinn er kominn irin úr og Elliði er að leggja í sundið, sagði hann svo. En nú mega Joeir hafa hraðan á. Sæfarinn dokar við til Jress að veita aðstoð, ef hægt er, og nú . . . Geiri náfölnaði og hélt niðri í sér andanum. Gréta Jrreif í handlegginn á honum. — Hvað sérðu? í guðanna bæn- um, sagði hún biðjandi. Sjálf sá hún ekkert annað en ægilegar öldurnar og hvítfyssandi brimlöðrið. — Guð minn góður, láttu Jtá ekki farast, bað hún af öllurn mætti sálar sinnar, og bænin bar hana á öldutoppunum alla leið út til Kára, Jrar sem hann barðist við ofurntagn hafrótsins. — Ólagið reis undir Elliða og bar hann inn úr á réttum kili, æpti Geiri, og nú róa Jreir i land á eft- ir Sæfaranum. — Það er ekki séð enn Jaá, hvort mennirnir eru allir, sagði einhver í hálfum hljóðurh. En mennirn.'r voru allir. Þeir gengu x land, Jxögulir og þungbún- ir og báru Jxess greinilega merki, að Jxeir höfðu komizt í návígi við dauðann. Sjórinn var nú orðinn svo ægi- legur, að }>að var næstum }>ví óskilj- anlegt, að hann liefði ekki heimt- að neina fórn að J>essu sinni. Gréta skeytti engu öllum Jxeirn forvitnisaugum, senr á henni hvíldu. Hún hljóp í veg fyrir skipshöfnina af Elliða og greip um höndina á Kára. — Velkominn heim, sagði hún og horfði Ixeint í augu hans. Hann átfaði sig ekki undir eins og leit á liana myrkunr augum, sem endur- spegluðu ógnir hafsins. — Kári, hvíslaði hún J>á lágt og innilega. Og í Jressu eina orði fólst hið langjxráða svar og lausn allra vandamála. HILLINGAR Framhald af síðu 27. að svífa allt að 100 metra í loftinu. Að sjálfsögðu er keppt eftir Jxví að svífa sem lengst, en þó Jjykir hitt ekki minna urn vert, að lenda með sem mestri leikni, mýkt og fegurð. Þegar keppt er um fegurð og leikni í lendingu, bera stúlkur venjulega sigur úr býtum, en piltar, ef keppt er um að stökkva sem lengst. Er við höfum lrorft á Jjessa heillandi íjjrótt nokkra stund, spyr fylgdarmaður minn mig, hvort ég vilji nú ekki breyta um og heyra fagran söng og sjá leiksýningar, Jjví sig langi til að ég dvelji hér unz hátíðahöld- unum ljúki, Jjví að nú seinni árin ljúki Jjeim á nokkuð áhrifaríkan og minnisstæðan hátt: Litlu flug- tæki er skotið á loft er ritar eftir- farandi á himininn: „Heiður og Jjiikk fyrir framsýni og stórhug." Og nú stígum við aftur upp í bíl- inn, og er hann rann af stað með okkur til söngs og glæstra leik- sýninga, heyrði ég smásmell, og allt varð hljólt og dimmt fyrir augum mínum. Ég áttaði mig Jjó skjótt, ég fann að ég lá í rúmi mínu og lieyrði drynjandi vetrar- hrið dynja á glugganum. Ég stíg fram úr, rek fótinn i bók á gólf- inu, ævisögu Sigurðar lrá Bala- skarði, sem fallið hefur af náttborð- inu og vakið mig. Ég kveiki, sé frostrósir á rúðunum, og grár og kaldur hversdagsleikinn hríslast um mig allan, en um leið hringir klukkan í Klausturtuininum fyrstu morgunhringinguna sína og minn- ir mig á, að brátt sé mál að rísa úr rekkju og sinna störfum. Ég klæði mig, ler út og geng á móti kaldri og hálfkæfandi hríðinni áleiðis til verka minna. En i gegnum hríð- ardyninn heyrist mér kallað til mín: Gleymdu Jjví ekki, þótt nú sé liríð og vetur, að aftur kem- ur vor í dal. ☆

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.