Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1960, Qupperneq 36

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1960, Qupperneq 36
36 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR Aíviiiiiiif,vririakkiii í liæniiiti IV: Inngangsorð Á undanförnum sex áratugum hei'ur Hafnarfjörður vaxið úr litlu sjávar- og fiskimannaþorpi í þriðja stærsta kaupstað landsins. Þetta er merkileg saga, sem ekki verður rakin hér. Fólkið hefur skapað þessa sögu, en bærinn á fjölmörg- um einstaklingum, félögum og stofnunum að þakka sinn mikla vöxt og viðgang. Mörg félög og fyrirtæki hafa verið stofnuð síðan tim aldamót. Sum eiga sér langa og merkilega sögu, önnur hafa verið skammlíf, en öll hafa þau markað sín spor í atvinnu- og menningarsögu bæjarins. Eitt þeirra fyrirtækja, sem á sér samfellda sögu og öðrum fremur hefur verið nátengt vexti og þró- unarsögu Hafnarfjarðarkaupstað- ar, er hlutafélagið Dvergur. Það á nú senn hálfrar aldar afmæli. Félagsstofnun. Hinn 27. desember 1911 keyptu 12 Hafnfirðingar verksmiðjubygg- ingu þá, sem Jóhannes J. Reykdal stofnaði og reisti við Hamarskots- læk árið 1903 og mynduðu með sér sameignarfélagið Dverg. Stofn- endur Dvergs voru þessir rnenn: Aug. Flygenring, kaupmaður. Davíð Kristjánsson, trésmiður. Guðjón Jónsson, trésmiður. Guðmundur Kinarsson, trésmiður. Guðmundur Helgason, bæjargjk. Ingibergur Þorkelsson, trésmiður. Jón Þórðarson, bókari. Kristinn Vigfússon, verkstjóri. Sigfús Bergmann, kaupmaður. Sigurgeir Gíslason, verkstjóri. Þórður Edilonsson, liéraðslæknir. Ögmundur Ólafsson, trésmiður. Stoínendur Dvergs voru allir kunnir athafnamenn, Jrekktir borg- arar og áhugasamir trésmiðir í Hafnarfirði. Af stofnendum eru aðeins tveir á lífi, Jjeir Guðjón Jónsson, kaupmaður, og Guðmund- ur Einarsson, fyrrv. framkvæmda- stjóri í Dverg. August Flygenring var kosinn formaður félagsins, en Siglús Berg- mann iyrsti framkvæmdastjóri jtess. Hinn 29. október 1916 er sam- eignarfélaginu breytt í hlutafélag og Guðmundur Helgason ráðinn frámkvæmdastjóri, og var hann jafnframt formaður félagsstjórnar. Aðrir í stjórn voru August Flygen- ring og Davíð Kristjánsson. Þetta voru máttarstoðir félagsins. August Flygenring lagði fram nokkurt rekstrarfé strax í upphafi og lét sér mjög annt um lelagið alla tíð meðan hann lifði. Davíð var hinn hyggni og ráðholli félagi, og Guð- mundur sá um daglegan rekstur og framkvæmdir, úrræðagóður, góð- viljaður, hagsýnn og reglusamur í fjármálum. Það var gæfa félagsins, að Jrað átti völ á slíkum ágætis- manni fyrir lramkvæmdastjóra. Það var jtví mikið áfall iyrir félagið, Jregar Guðmundur Helgason féll frá árið 1929. En Dvergur átti fleiri Guðmunda í þjónustu sinni. Guðmundur Ein- arsson, sem lengstum er kenndur við Dverg, tók við framkvæmda- stjórastarfinu. Hann var afburða- starfsmaður, traustur, íhugull og gætinn. Jafnframt Jrví að vera Iramkvæmdastjóri lét hann sig ekki muna um að hafa á hendi verk- stjórn alla í verksmiðjunni líka. Og hvort tveggja fórst honum vel úr hendi, Jrví að hann var mikill og góður verkstjóri. Guðmundur lét af störfum hjá Dverg árið 1947, og við iramkvæmdastjórastöríum tók Jónas Sveinsson, sem gerzt hafði starfsmaður í Dverg árið 1925 og gjörjrekkti því fyrirtækið. Hann er hinn sívinnandi forstjóri, reglu- samur og samvizkusamur, og lætur fyrirtækinu i té alla sína starfs- krafta óskerta. ÓJrarft er að kynna hann frekar fyrir Hafnfirðingum. Jóiias í Dverg Jrekkja allir. Árið 1920 gerist Ásgeir G. Stef- ánsson hluthafi í Dverg, og hefur liann verið félagi siðan. Hann er nú lormaður félagsstjórnar, en aðr- ir i stjórn eru Kristinn Guðjóns- August Flygenring Davíð Kristjánsson Guðjón Jónsson Guðmundur Einarsson Guðmundur Helgason Ingibergur Þorkelsson Jón Þórðarson Kristinn Vigfússon DVERGIJR H.F.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.