Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 3

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 3
B L A Ð M m u n i n n ENNTASKÓLANS Á AKUREYRI 2. tbl. . 39. árg. . A. D. MCMLXVI Sjá, ennj)á rís stjarnan, sem brennur björtust og mildust á bládjúpum miðsvetrarhimni hins snæþakta lands. Sjá, ennþá nálgast sú hátíð, sem hjartanu er skyldust og huggar með fagnaðarsöngvum hvert angur manns. Og innan skamms byrjar kappát í koti og höllu og klukknahringing og messur og bænagjörð. Það er kannski heimskast og andstyggilegast af öllu, sem upp var fundið á þessari voluðu jörð. Og ger þú nú snjallræði nokkurt, svo fólkið tinni í fordæmi þínu hygginn og slóttugan mann: Með kurteisum svip skaltu kveikja í stofunni þinni, og kauptu svo sóknarprcstinn og éttu hann. [Steinn Steinarr: JÓL.) Senn líður að jólum. Grámóskan er horfin af andliti náungans, þar sem hann gengur til bankans til að útvega sér víxil, svo ekki verði hann eftir- bátur „mannsins í næsta húsi“, hvað gjafir og veizluhöld áhrærir. Gylli- vörur blasa við augum í gluggum verzlananna, og fávís almúginn lætur glepjast og opnar buddu sína kaupmanninum til arðs. Nemendur strjúka mörlausan maga sinn, hugsandi til væntanlegra kræsinga. Kennarar strjúka sín gráu hár og gerast skemmtilegri með hverjum deginum, sem nær dregur þessari stórfenglegu afmælishátíð. Börnin hugsa vel til Jesú Krists, Maríu meyjar og gamla mannsins með skeggið, því að án þeirra tilverknaðar væru jólin og sú gjafa- og veizluhaldabrjálsemi, sem þeim fylgir, ekki fyrir hendi. í ofanskráðu kvæði eftir hið mikla skáld, Stein Steinarr, deilir hann á þá vitfirringu, sem tröllríður þjóðfélaginu, þegar líður að jólum. Gjafmildi og höfðingsskapur grípa íslendinginn heljartökum. Hann eyðir stórfé í mat, gjafir og áfengi, því að eins og sönnum íslendingi sæmir, drekkur hann við öll tækifæri, og fæðing frelsara vors er síður en svo dónalegur atburður til að drekka upp á. Kona hans veitir honum, af, að því er virðist, stakri um- liyggju fyrir hans andlegu velferð, leyfi til að dýfa sinni sálartungu í spír- MUNINN 39

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.