Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 6

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 6
* SMASAGNAKEPPNI MUNINS Lokið er smásagnakeppni Munins. Alls bár- ust tíu sögur, og telst það mjög góð þátttaka. Hins vegar voru flestar sögurnar hvergi nærri nógu vel unnar. Dómnefnd, skipuð þeirn Hall- dóri Blöndal, íslenzkukennara, Héðni Jónssyni, frönskukennara, og Gunnari Skarphéðinssyni, nemanda í V. m. b., komst að þeirri niðurstöðu, að einungis ein saga væri verðlauna virði, saga Grettis Engilbertssonar, „Spámaður almættis- ins“. Óskum við honum til hamingju. Er sagan birt hér í blaðinu, ásamt þremur öðrum, sem bárust í keppnina. í ráði er að halda aðra keppni síðla vetrar, og vonum við, að skriffinnar vinni sögur sínar betur, þar sem margar sögur bentu til efnilegra höfunda. GRETTIR ENGILBERTSSON: Spámaður almættisins „Vaknaðu, helvítis niðursetningurinn þinn oe skríddu fram úr lúsabælinu. Það er kom- inn dagur fyrir löngu. Heldur þú, að þú getir unnið fyrir mat þínum með því að sofa allan daginn?" Húsbóndinn stóð við fletið og hristi vesælt þý sitt ómjúkum höndum. Þegar hann sá lífsmark með honum, sparkaði hann í rekkjustokkinn að skilnaði og gekk burt. Siggi niðursetningur reis upp, klæddi sig í garmana, sem náð mannanna hafði gefið honum utan á sig, og gekk út til þess að sinna skyldum þessa heims. Hann signdi sig á bæjarhlaðinu að kristinna manna hætti og datt ekki í hug að ásaka máttarvöldin fyrir eymd sína. Síðan gáði hann til veðurs, tók sólarhæðina og gerði ýmsar aðrar at- huganir á ástandi sköpunarverksins, eins og til að fullvissa sig um óbreytanleik þess. Eftir þessa stuttu og hógværu guðsþjón- ustu hélt hann út í nátthagann, þar sem ærnar biðu þess að verða nytjaðar til þarfa mannfólkinu. Hann stuggaði þeim heim í kvíarnar og lagðist á sinn vanastað á kvía- vegginn. Stúlkurnar komu út til þess að mjólka ærnar. Þær vingsuðu dollunum í kring um sig, mösuðu og hlógu, eins og þær áttu vanda til. „Þarna situr niðursetnings-ómaginn! — Hvað skyldi hann nú vera að hugsa? Nú skulum við kankast svolítið á við piltinn.“ „Það er ég viss um, að hann er að hugsa um að biðja mín,“ sagði ein þeina hlæjandi. „Nei, mig vill hann fá,“ sagði önnur. „Haldið þið virkilega, að hann líti við drósum eins og okkur, svona myndarlegur og vel klæddur höfðingjasonur? Honum dugir ekkert minna en sýslumannsdóttirin,“ sagði sú þriðja hlæjandi. En niðursetningar kunna sjaldnast að meta fyndni þeirra, sem æðri eru. Og hvern- ig, sem á því stóð, þá fyrtist hann venju fremur við þessa áreitni þeirra, þótt hann 42 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.