Muninn

Årgang

Muninn - 01.05.2003, Side 10

Muninn - 01.05.2003, Side 10
r Imp^tSr scholae * - Borgný Skúladóttir Sælt veri fólkið. Rúmt ár hefur liðið og mikið vatn runnið til sjávar síðan ég stóð frammi fyrir fullum sal í kvosinni og söng framboðsræðuna mína, dyggilega studd af þremur vinum mínum. Þann 11. apríl voru örlög mín svo ráðin og þá ekki aftur snúið! Ég skyldi leiða vænan hóp ólíkra einstaklinga og áttum við í sameiningu að sjá um skipulagningu á öllu félagslífi innan skólans. Ég fengi að semja ræður, flytja ávörp, hringja bjöllunni, vera gáfúleg og tala við Loga ef MA kæmist í sjónvarpið! Þetta mátti þó ekki koma niður á náminu sem auðvitað ætti að stunda af kostgæfni og alúð... hmmm... Umbrotatí- mar fóru í hönd. Ég þurfti að venjast því að segjast vera formaður skólafélagsins Hugins og tala um stjómina mína. Ég mátti laga mig að stressköstum og martröðum um illa skipulagða árshátíð. En viti menn! Allt bjargaðist þetta og ég hef sloppið tiltölulega ósködduð frá þessari eldskím og þvert á móti fengið fjölbreytta, lærdómsríka og síðast en ekki síst skemmtilega lífsreynslu. Eins og svo oft áður, er tíminn ótrúlega fljótur að líða ef mikið og skemmtilegt verk er haft milli handa og mér finnst þetta allt eins hafa gerst í gær. Við þekkjum það vist flest hve tíminn er í raun afstætt fyrir- brigði. Sama árið getur verið skemmtilegt, viðburðaríkt og fljótt að líða í augum einna en tilbreytingasnauðara og því lengur að 10 líða í augum annarra. Þar er um að ræða mismunandi upplifún þeirra sem taka þátt. Svo að ég tali nú ekki um vísindalegu sön- nunina um þá sem fara í ferðalag og hina sem gera það ekki. Af einfoldum ástæðum læt ég hana liggja á milli hluta hér. Margs er að minnast frá stjómartíðinni og þessum síðasta (7-9-13) vetri mínum í Menntaskólanum á Akureyri. Mörg félög settu svip sinn á félagsstarfið í vetur og standa nokkur þeirra upp úr. Það er ósk mín að þessi félög eigi enn eftir að auka umsvif sín sem og ný og fersk félög blómgist næst- komandi skólaár. Mér fannst gaman að fá það tækifæri að fylgjast náið með þeim mörgu sigmm sem voru unnir hér í kvosinni á mörgum mismunandi sviðum. Við eigum frábæra söngvara, hljóðfæraleikara, mælskumenn og hugsuði, að ógleymdum sérlegum störumeistara (sem reyndar er horfinn á vit annarra góðra MA-inga, upp í VMA). Og Kvosin var vígvöllur þeirra allra. Góð aðstaða er mikilvæg til þess að halda úti öflugu félagslífi. Árshátíðin, sem haldin var þann 29. dag nóvembermánaðar, var stórglæsileg að vanda. Heiðursgestur okkar á hátíðina var Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra (þegar þetta er skrifað) og hans ektakvinna, Nína Þórðardóttir. Skemmtiatriðin voru mörg hver í rokkaðri kantinum og kryddaði óneitanlega upp á hátíðina. Dansleikurinn með Pöpum líður mér seint úr minni, því hvorki fyrr né síðar hefúr mér tekist að dansa svo tryllingslega að grandalausar kynsystur mínar missa fætuma með þeim afleiðingum að sparikjólar þeirra rakna upp á öxlum þeirra. Hvort sem það má rekja til léttis míns vegna þess að undirbúningsh- lutverkinu væri lokið eða mikils dálætis á írskri þjóðlagatónlist veit ég ekki. Senni- lega hvors tveggja þó. Menningarferðin til Reykjavíkur var farin um mánaðarmótin febrúar-mars og hep- pnaðist hún mjög vel í alla staði. Mér finnst það í raun skylda allra MA-inga að fara í svona ferð, allavega einu sinni á skólagön- gunni því þeir kynnast nýju fólki og mun betur innbyrðis. Það er að sjálfsögðu hluti af frábærri skemmtun. í mínu tilfelli kynntist ég mörgum litríkum persónum sem ég hefði alls ekki viljað missa af. Lið okkar í hinum ýmsu keppnum stóðu sig með stakri prýði og juku enn á hróður skólans út á við. Það er virkilega gaman að fylgjast með hversu góð stemning myndast kringum þessar keppnir og er nauðsynlegt að styðja vel við bakið á liðsmönnum. Gettu betur liðið stóð sig frábærlega i vetur undir handleiðslu Einar Sigtryggssonar og tók á móti íslandsmeisturum MR-inga
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.