Muninn - 01.05.2003, Qupperneq 26
R^m||| „soldið reiður 34 úra
\^ll rUIII fyrrum unglingur"
Viðtal: Jóna Rún Daðadóttir
Myndir: Dagsljós/Birkir
Ég tyllti mér á efri hæð Café
Amours laugardaginn 29.
mars og beið eftir viðmæl-
enda mínum, Ólafi Páli Gunn-
arssyni, eða Óla Palla eins og
hann er oftast kallaður. Hann
var svalur að vanda, þessi
konungur Rokklands, þegar
hann kom, yfirvegaður og ró-
legur. Hann settist niður,
kveikti sér í sígarettu, fékk
sér kaffisopa og næsta
klukkutímann gleymdi ég
mér í spjalli við hann um tón-
list, sem er hans ær og kýr...
Finnst þér ekki fín tilbreyting að
fá Söngkeppni Framhaldsskól-
anna hingað norður á Akureyri?
Jú, mér finnst það mjög gott mál.
Ég held að það sé vel að þessu
staðið í ár og það er nú oft þannig
þegar ungir krakkar eru að gera
eitthvað svona þá er meiri metn-
aður heldur en hjá þeim sem eru
eldri og eru að gera þetta meira
eins og þetta sé vinna...þannig að
ég hlakka bara til.
Þú varst á úrslitakvöldinu á Mús-
íktilraunum í gær (föstudaginn
28. Mars), var það ekki gaman?
Jú, það var mjög gaman. Það er
alltaf eitthvað athyglisvert sem
kemur þar fram og maður sér
hvernig músíklandslagið er. Það
var mjög fín aðsókn og rúmlega
fimmtíu hljómsveitir sem kepptu
í það heila, þannig að þetta var
ansi mikið. Það er mikið rokk í
gangi, sérstaklega á landsbyggð-
inni. Ég saknaði þess reyndar
svolítið að sjá ekki meira af nýju
rokki í anda NÝJU rokkbyltingar-
innar sem er í gangi núna í
heiminum. Það er svona pönkrokk
sem er að koma upp um allan
heim, í Englandi og Bandaríkjun-
26
um, New York sérstaklega, í
Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Sví-
þjóð og bara út um allt. Það
hefur lítið af því skilað sér
finnst mér til ungu
krakkana sem eru að
keppa í Músíktilraun-
um. Það var bara
eitt band
sem var í
þeim anda
og þeir
voru einmitt
frá Akureyri.
Ég man ekki
alveg hvað
þeir heita,
en þeir
komust ekki
í úrslit.
Nú eru til ýmis af
brigði af rokki.
Hvernig rokkari ert
þú? Hefur þú gam-
an af öllu rokki?
Ég er bara allskonar.
En leiðinlegasta
músík sem ég heyri
er leiðinlegt rokk.
Það er til ofsa-
lega mikið af
leiðinlegu rokki
sem mér finnst
alveg ógeðslega leiðinleg,
og það var slatti af fínum
böndum á Músíktilraunum
sem voru þétt og vel spi-
landi en voru bara að spila
svo leiðinlega músík. Músík
sem er ábyggilega gaman
að spila en leiðinlegt að
hlusta á. Allavega upplifi
ég þetta þannig. Miðað við
úrslitin í ár og í fyrra þá
ættu hljómsveitir sem stef-
na á sigur í Músíktilraunum
á næsta ári að skoða hlut-