Dýravinurinn - 01.01.1889, Qupperneq 20

Dýravinurinn - 01.01.1889, Qupperneq 20
•20 Karó og Goti. tjúpi minn átti stóran gulan hund, er Karó hjet og var Iiann af útlendu kyni. Hann var tnjög viljugur að sækja bæði á sjó og landi. Um það leyti jeg var 3.—4. ára gamall, gjörði stjúpi minn það opt að gamni sínu, að leggja mig á magan á stofugólfið og skipa svo Karó að sækja mig. Hann gjörði það ætíð á þann hátt, að hann tók með tönnunum aptan í buxnastreng minn og lagði mig svo fyrir fætur húsbónda síns. Karó var mjög elskur að mjer, líklega af því að lionum hefur þótt gaman að þessum leik við mig, óg þegar jeg var einn titi, var Karó optast nær meö mjer. Einusinni hafði jeg fariö fram á bryggju, og aflciðingin var sú, að jeg datt á kolsvarta kaf í sjóinn. Karó var ekki hjá mjer í það skipti, en sat uppi á landi skammt l'rá bryggjunni. Hann sá mig detta, tók þegar viðbragð og stökk út í sjóinn, náöi í buxnastrenginn og svnti með mig í land. Hefði hundurinn ekki verið, þá hcfði jeg sjálfsagt druknað. fegar Karó dó, var liann dysjaður í kálgarðinuin, og sjezt leiði lians þar ennþá f Hafnarfirði. * * Gráan hest átti jeg, ættaðan frá Flugumýri, sctn var kallaður Goti. Ilesturinn var gæða gripur, fallegur vel og skynsamur í mörgu ; reiö jeg honum ætíð sjálfur. Einusinni ætlaði jeg til Reykjavíkur og var Goti þá rekinn heim ineð mörgum öðrum hestum; það reyndist þá aö hann var lialtur, af því hann haföi stigiö sig. Var hann því skilinn eptir heima, og batnaði honum eptir nokkurn tfma. 1 næsta skipti, þegar jeg ætlaði til Reykjavíkur, var hann aptur rekinn heiin á hlað með mörgum hestum; þá var hann Iíka draghaltur, en ómögulegt var að sjá hvað að honum gekk. Jeg þorði samt ekki annað enn láta hann vera eptir. Hálftíma eptir að jeg var farinn af stað, var öll heltin farin úr honum. í þriðja sinn, er jeg ætlaði suður, var hann enn rekinn heim ineð hinuin hestunum, en allt fór á söinu leið; Goti var enn haltur til muna, en hvergi sá á honum. Mig fór þá að gruna að þetta munda vera skrópar, og tók hann með engu að síður. þegar við svo höfðum riöiö hálfan tfina var allt batnað. þessi helti kom aldrei fyrir neina þegar hann var sóttur með mörgum hestuin, og hefur það lík- lega verið af því, að þá þóttist hann vita að hann ætti aö fara í langferð. Gf. Thorgrimsson.

x

Dýravinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.