Dýravinurinn - 01.01.1889, Page 28

Dýravinurinn - 01.01.1889, Page 28
28 Plokksson — Fætter — Hringur. augun. ^aðir minn átti, hin síðari ár æfi sinnar, liund af hinu alkunna hundakyni, sem kennt er við hund Skaptasens læknis í Hnausuín, l’lokk, og hjct hundurinn Plokksson. Hundar af því kyni eru auðþekktir að lit og háralagi, vanalega brúnir á belginn, golsóttir og gulbröndóttir kringuin Flestir sýna þeir vitmerki, sumir af því kyni eru góðir skothundar, en einkum er þeim 'viðbrugðið fyrir tryggð. Plokksson þessi var frámunalega tryggur. Engum fylgdi liann nema föður mínum, eða þá þeim, sem annaðhvort bar beizli hans, eða sat á reiðhesti hans. Hann fylgdi smalanum langt fram í hagann, þegar hann fór með beizlið að sækja líauð. Alltaf þurfti liann að heilsa Rauð, þegar hann var teymdur eða rekinn í ldað, stundum þá með því að sleikja um snoppuna á honum. Sumarið 1880 var jeg heima, og var þaö skrítið að Plokksson fylgdi mjer á bæi, sem hann annars gjörði ekki neinum manni, en það mun hafa byrjað svo, að jeg heilsaði upp á kunningjana í sveitinni á Rauð fööur míns, sem aðrir riðu annars ekki. Einusinni var Plokksson lokaður inni í stofu í Laufási, af því faðir minn vildi, einhverra orsaka vegna, ekki hafa hann ineð, en þá stökk hann á rúðu í glugganum, og náði föður mínum allur blóðugur og var óskiljanlegt hvernig hann, fremur stór hundur, gat komizt út um þá rúöu. í Iivert sinn sem Plokkssyni var sýnd þessi rúða, skammaöist hann sín rnikið, og fleygði sjer niður, eins og hann væri að biðja fyrirgefningar. J>etta sumar, sem jeg var heima, fór faðir minn sjóveg í kaupstað, en vildi ekki Iiafa Plokksson með, vegna þrengsla í bátnum, en Plokksson mátti heldur ekki vita af því að liann færi af stað, eða fylgja honum til skips, þvf liann hafði sýnt sig í því áður að synda eptir skipinu, svo að annaðhvort varð að láta hann drcpast, eða taka liann upp í, og eins liaföi hann ldaupið á landi, sainferða bátnum, og synt yfir Eyjafjarðará. Jeg var svo ineð Plokksson frammi í stofu, en rjett í því að faðir minn er koininn af stað, verður hundurinn órólegur, ýlfrar og rífur í hurðina; jeg var nærri því hræddur við að hann mundi bíta mig. Hvað hann gat orðiö var við vcit jeg ekki, nema hann hafi heyrt riðið úr hlaðinu; það var átakanlegt að sjá hvað skepnunni leið illa; hann leit ekki við rnjólk, sein jeg sctti fyrir liann. Eptir aö faðir minn var dáinn fjekkst rakkinn aldrei til að koma upp á baðstofulopt, þar scin liann koin þó daglega áður að sníkja, hann sinnti eiginlega engu úr því, lá jafnast í einhverju framhýsi, og stundum líka út í kirkjugarði, sein ekki var venja Iians áður, og kom aðeins á sínum vissa tíma í búr til móður minnar að sækja sinn inat.

x

Dýravinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.