Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1938, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.01.1938, Blaðsíða 5
KONUNGUR FIÐLARANNA EFTIR THEODÓR ÁRHASON Flestdr, sem einhver kynni haf.a, af fi lu tónsmíðum, kannast við Tataralb'g Sara- sates (Zigeuner-weisen) og miargur ungur fiðlarinn spreytir sig á þeim. Pau eru á viðfangsefnaskrá ílestra fiölusnilling.a og vekja jafnan aðdáun og hrifningu áheyr- enda, því að þau eru ,svo ákaflega »auð- melt« þó að þau séu ekki aualeikin, því ao ekki er það annara með færi en snillinga, að fara með þau, svo að vel sé, enda eru þau einhver glæsileg- asta tónsmíðin, sem, til er fyrir fiðlu. Almenningur á Is- landi hefir nú um nokkurt skeið átt kost á, að kynnast góðri hljómlist, eða síðan út- varpið tók til starfa, og marga fýsir nú, að vita nánari deili á ýmsu, sem þeir heyra í útvarpinu. En um Pahlo Sarasato, honungur fiðlaranna. tónlist og tónlistamenn er fátt skrifað á íslensku. Skal ég nú segja lítið eitt frá ein- um hinum merkasta og vinsælasta tónlista- manni, sem uppi hefir verið á hinum síð- ari árum, spánska fiðlaranum Páli eða Pablo Sarasate, — höfundi Tataralaganna. Hann var fæddur í fagurri og einkenni- legri borg á Spáni, Pamplona, 10. marz 1844, — og lést fyrir réttum 30 árum sáð- an, eða 1908. Faðir hans hafði verið hljómsveitarstjóri í hinni konunglegu lífvarðarhljómsveit, en í uppreisn einni hafði hann verið í liði and- stæðinga drotningarinnar, og misti fyrir það stöðu sina og frelsi. Hann var mörg ár í fangelsi, en kona hans lifði við þröng- an kost Hún tók að sár allskonar handa- vinnu, og vann baki brotnu. En það er talið líklegt, að hún rnunidi hafa látið bug- Sarasate á hljómleihapalli.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.