Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1938, Síða 12

Heimilisblaðið - 01.01.1938, Síða 12
10 HEIMILISBLAÐIÐ SIÍUGGIIVN Skáldsaga, eftir George Owen Baxter. XLII. Svcddur íd. Tom Converse steSð í útjaðri skógarins og horfði á eftir Sylviu, sem sneri sér við í .söðlinum og veifaði til hains með hendinni. Þegar hún var horfin niður fyrir bakkann, sneri hann við og igekk inn á milli trjánna. Honum fanst eins og þungum steiini væri létt af sér. Eftir no.kkra daga myndi þetta alt vera búið. Ef þeir myndu veita henni þenna tveggja daga frest, þá væri hann sloppiinn, því að þeim tíma liðnum myndi hún verða kom- in aftur með nægar sannanir fyrir því hver hann var. Nú, þegar hann hafði séð hana og talað við hana, fanst honum það ver ómögulegt, að hann ætti bráðum að deyja.. Nei, li.fið var altof dýrmætt fyrir hann og Sylviu Rann. Hve blátt. áfram og einlæg hún hafoi verið gagnvart hon.um. Húln elskaði hann og hann elskaði hana, þa,u höfðu talað út um það mál. Nú var það freisi hans, sem mest reið á að fengist, ag þó fanst honum það vera lítils virði samanborið við' það að Sylvia elskaði hann. Hann hélt áfram inn í skóginn, það var ekki lengur nauðsynlegt að vera eins var um ,sig og áður. óvinir hans myndu ekki halda áfram að elta hann, heldur l,áta sér nægja að gæta þes,s, að hann slyppi ekki burt. Hann þrengdi mittjsólina til þess að reyna að kæfa sultinn, sem farinn var að kvelja hann. Síðan bjó hann sér til bæh úr þurru laufi, og lagðist niður og starði út í myrkr- ið uns hanii sofnaði. Hann vaknaði við óp og læti í mörgu fólki, sem var einhvers staðar í nám.unda við hann. Að vitum han,s barst sætkendur eimur af brennandi trjám. Þegar hann vai farinn að átta, sig, túk hann eftir því, að það var albjart í kringum hann. Hann stökk á fætur. Hafði hann sofio yfir sig? Var sólin virkilega komin upp? Meðan hann stóð þarna ráðalaus, sá hann þokumökk berast með vindinum út úr trjánum og stefna beint á sig. Mök'kurinn var svo þéttur, að hann huldi trén og alt, sem bak við var. Nú luktijet mökkurinn ut- an um hann sjálfan. En hvað var þetta? Hann byrjaöi að hósta og svíða í, augun. Þetta var þá ekki ix)ka, eins og hann hafði haldið, heldur reykur, og öll þessi birta, í kringum hann var eldur. Kjarrið var að brenna alt í kringum hann. Hann, stökk af stað. Hann varð að flýja frá þessum hræðilega dauðdaga, sem beio hans þarna. Skógurinn xogaðl. En hver hafði kveikt í. honum? Það hafði reyndar oft verið gert, þegar verið var að elta illræmda glæpamenn. En hann skildi þetta ekki. Þeir, sem eltu han.n, höfðu fyrir stundu ,síðan lofað Sylviu aö gefa honum tveggja daga frest. Hið glað- lega yfirbragð hennar, þegar hún veifaði til hans, hafði færf honum heim, sanninn um það, að hún hafði sigrað. Hann hafði einn% heyrt drynjand.i »já«, sem þeir svöruðu beiðni hennar með. En nú? Nú brann alt í kringum hann og reyk-

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.