Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1938, Qupperneq 25

Heimilisblaðið - 01.01.1938, Qupperneq 25
HEIMILISBLAÐIÐ 23 enda lang'aði mig harla lítið til þess, því að einu sinni, þegar ég spurði Gamla, hvað væri skemtilegast þar, svaraði hann, að presturinn ætti ágætt bókasafn. Og þeg- ar ég spurði Korpus Júris um þetta sama, fékk ég sama svarið; og- þá varð ég hissa — Korpus Júris var nfl. ekki mikið hneigð- ur til guðfræðisiðkana; en svo sagði hanr. m-ér líka, að í bókasafninu væri margar ágætar bækur um kirkjuréttinn. Þegar ég var nokkrum sinnum búinn, að spyrja bræður mína um djásnin á Hnetubúi og hafði einlægt fengið sama, svarið: bóka- safnið — kirkjurétturinn, settjst það fast að í höfðinu á mér, að á Hnetjubúi væri ekki annað starfað frá morgni til kvölds en setið í bókasafnsherberginu og lesinn kirkjuréttur. Þar sem það er nú. alveg eins þægilegt að lesa kirkjurétt í Kaupmanna höfn eins og á Hnetubúi, áleit ég það ekki cimaksins vert; að fara þangað. En af því hvorutveggju, að Gamli bauðsit til að borga ferðakostnaðinn, cg svo hinu, að ég vissi ekki almennilega livað ég ætti af mér að gjöra, þegar bræður mínir væri farnir — þá tók ég boðinu; ég hugsaði líka, sem svo, að eitthvað kynni þó að vera í þessu dæma- lausa bókasafni, sem ég. hefði gaman af að lesa. Og svo fórum, við að týgja okkur. Og þegar ég sá koffortið og ferðatöskuna á gólfinu, fór mig að sárlanga að komast út til Hnetubús; — en það er nú svona: jafn- skjótt og ég sé koffort, þá langar mig til að fara að ferðast. Næsta morgun vöknuðum við við það, að barið var fast að dyrum. — Það var maðurinn, sem átti að fíytja dót okkar á járnbrautarstöðina. Korpus Júris stökk á fætur og hrópaði: »Mikil ósköp! Klukkan er farin að ganga sjö. Opp, upp Kristótfer; upp Nikoilaj«. Eg segi nú fyrir mig — mig langaði miklu meþ' til að liggja kyr í rúminu og syngja: »Sigl,um hægt út á svið«. — En það duga ekki góðar bænir, þegar ilt á að ske — og ég varð að klæða, mig. Til þess að hafa af mér svefninn, og líka til þess að vekja Gamla, tók ég að syngja við ra,ust Bjarkamál hin fornu: »Vaki, vaki hermenn harðir! Hlaupið upp og spennið gjarðir« -— en lenjgra, komst ég ekki, því að þá sagði Korpus Júris: »Blessaður: hættu þessu, drengur. Hvað á það að þýða, að taka til með þess;i læti strax að morgn- inum:?« Ég þagði, því að ég mundi þá alt í einu eftir því, að Korpus Júris var ekki búinn að lesa dagblaðið; og ég hugsaði. með mér: »Það væri auma, baslið, ef prestur- inn á Hnetubúi keypti nú ekkert. dagblað — þá yrði Korpus Júris í slæmu skapi all- an daginn og alla daga«. Og ef ég hefði haft tíma, þá hefði ég safnað saman ein- hverju dagblaðarusli, svo hann hefði haft það til að líta í, heldur en ekki neitt En ég hafði engan tjma til þe&sa; við þurftum að flýta okkur það sem við gátum. Korpus Júris stóð ferðbúinn með höndina á hurð- arsnerlinum og rak eftir okkur., Gamli hafði tæplega tima tjl að fara í skóhlífarn- ar og grípa regnhlífina sína, sem hann al- drei vildi \öð sig skilja. Já, það var meira að segja svo mikill asi á Korpus Júris, að hann velti um koll tómri blekbyttu — og svo náttúrlega að skamma mig fyrir það, að ég hetfði trassað, í samfleytta þrjá daga. að láta blek í hana, en satt. að segja vii tist mér ég fremur eiga lotf skilið en last fyrir þessa vanrækslu mína, einkum af því að svona fór. En loks urðum við þó ailir ferð- búnir og héldum af stað. Þegar ég kom út á götuna, fann ég að það var nístandi kalt úti. Já — það var nú reglulegur jólakuldi. Himininn var dökk- blár — nærri blásvartur, og- máninn var enn á lofti; hann var fölur og kuldalegur og grár eins og geitarmilti var hann, eins og hann hefði verið að svalla alla liðlanga nóttina. Snjórinn marraði undir fót.um okk- ai', þegar við hlupum eftir götunni; þó komjumst við nógu snemma á stöðina; en það er bezt* að Korpus Júris segi frá því,

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.