Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1940, Blaðsíða 29

Heimilisblaðið - 01.11.1940, Blaðsíða 29
HEIMILISBLAÐIÐ 197 leitt. Hún hóf upp lampann sinn móti þeim og sagði: »Lítið á þetta!« Það sem við þá sáum var tröllaukinn klettastóll; í honum lágu dyngjur af mannabeinum, bæði á sætinu og undir því. Þar á meðal voru höfuðskeljar prýddar gullkrónum með undarlegum hætti; en milli beinanna lágu önnur djásn og dýrgripir, svo sem veldissprotar, hringar, hálsbönd, vopn og herklæði. E'n þetta var nú ekki allt og sumt, því að kringum stólinn lágu aðrar beinagrindur, fimmtíu eða fleiri í víðum hring, c.g þar á meðal yoru djásn, sem eigendur þeirra höfðu borið. Og fyrir framan hverja beinagrind stóð borð; sáum við síðar, að það var úr silfri eða eir, og' á þeim lágu alls konar dýrindi, eins og' skálar úr gulli, snyrtitæki og alls konar skartgripir, settir dýrum steinum. Þar að auki voru þar heilar hrúgur af hringmynd- uðum peningum eða baugum og hundruð annara hluta, sem mennirnir hafa, haft mætur á frá upphafi þjóðmenningarinnar. »Þið skiljið það«, mælti Maqueda. c.g starði undrandi á þessa dýrð, »það var konungur, sem í stólnum sat. Þeir, sem í kringum hann voru, voru lífvörður hans, herforingjar og konur. Þegar hann var jax-ðsettur, þá var allt skyldulið hans og þjónar grafið með honum. Þeir báru með sér alla fjársjóðu hans og var raðað allt í kringum, hann, síðan var allt drepið. Sóp- ið burtu í-ykinu o.g þá munuð þér enn sjá blóðblettina á berginu fyrir neðan þá, og sömuleiðis merkin eftir sverðin á höfuð- skeljum þeirra og hnakkabeinum. »Mér þykir reglulega vænt um að ég er ekki í þjónustu gömlu konunganna í Múr«, sagði Kvik. Síðan héldum. við áfram göngu vorri, og er við höfðum geng'ið eitth.vað tuttugu skref, hittum við annan jöfur, sitjanda á stóli og heilan hring af beinagrindum kringum hann, af öllum þeim, sem. dæmd- ir höfðu verið til að fylgja honum á dán- arförinni. Og fyrir framan þá alla var skemill og á hvei-jum þeirra jarðneskir Kernur út einu sinni í mánuði, 20 siður. Árgangurinn kostar 5 krónur. — Gjalddagi er 1. júní. Sölulaun eru 15% af 5—14 eint. og 20% af 15 eint. og þar yfir. Afgreiðsla;: Bergstaðastræti 27, Reykjavik. Sími 4200. Utanáskrift: Heimilisblaðlð, Pósthólf 304, Reykjavík. Prentsmiðja Jóns Helgasonar, Bergst.str. 27. dýrgripir úr gulli eða óæðra málmi. Fyrir framan þenna, konungsstól lá líka beina- grind af hundi með hálsbandi úr gimstein- um. Og enn bar okkur að grafreit. Þar benti Maqueda Oikkur á beinagrind, og borð fyr- ir framan. hana; var það alskipað af lyfja- flöskum og verkfærum, er þeirra tíma læknar hafa s.ennilega notaðt »Segið þér mér, doktor Adams«, sagði Maqueda brosandi, »vilduð þér ekki hafa verið líflæknir foirnkonunganna í Múr?« »Ekki held ég nú það«, svaraði ég, »en gjarna vildi ég skoða þessi tæki, með yð- ar leyfi«. Og er hún skundaði áfram, þá laut ég niður og fyllti alla m.ína vasa. Hér verð ég að skjóta því inn í, að mörg af þessum læknistækjum reyndust við ran- sóknir mínar vera nákvæmlega hin sömu eins og þau, sem notuð eru enn, þó að þau séu frá ómunatíð. En um það hafa lærðir menn óspart deilt., En um þetta kynlega og ægilega graf- hýsi, er nú senn ekki meira að segja. Við þoikuðumst áfram frá einum konunginum til annars, þangað til við vorum að lokum orðnir dauðleiðir á að horfa á mannabein og gull. Kvik var meira að segja orðinn þungur í spori, hann hafði varið öllum æskuárum sínum, til að hjálpa föður sín- um grafaranum, og skorti því ekki þekk-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.