Heimilisblaðið - 01.07.1944, Síða 3
33. árg. Reykjavík, júlí—sept. 1944 7.—9. tbl.
MáURALIST VIII.
MÁLARINN MICHELANGELO
Inngangur.
^ einum stað, að minnsta kosti, er Michel-
angelos getið í íslenzkum kveðskap. Það
er í kvæði eftir Davíð Stefánsson frá Fagra-
®kógi, seln heitir: Komdu inn í kofann minn:
Komdu inn í kofann minn
er kvölda og skyggja fer,
þig skal aldrei iðra þess
að eyða nótt hjá mér.
Við ævintýra eldana
er ýmislegt að sjá
og glaður skal ég gefa þér,
öll gullin, sem ég á:
og meðal gullanna eru:
Kórarinn í hvítu handi
og kvæðin eftir Poe,
myndastyttu meitlaða
af Miclielangelo.
Það er gengið út frá því sem vísu, að allir
viti það um þennan Michelangelo, að hann
liafi verið liöggmyndasmiður, og það svo af
bar. En það gleymist fremur að minnast þess,
að Miclielangelo hóf feril sinn sem listamað-
ur á öðru sviði listarinnar. Að vísu er mál-
aralistin og liöggmyndalistin náskyldar, þó
unnið sé með gerólíku efni. Og það er ennþá
Sköpun láös og lagar.