Heimilisblaðið - 01.07.1944, Qupperneq 12
120
HEIMILISBLAÐIÐ
Esekíel.
SpámaSurinn liefur lilið engisprettufaraldur-
inn tæta upp og rífa niður gróðurinn og þessa
mynd hefur hann sett fram um dag Jahve
í óglyemanlegu listaverki, sem rit lians er.
Og sjáum við ekki þytinn í storminum, sem
æðir yfir hári spámannsins?
5. Sákaría. Mynd Miclielangelos af Sakaría
er mynd af gömlum virðulegum presti, sem
blaðar í lielgri bók í kyrrð friðsams ævikvelds
eftir stormasaman starfsdag. Sakaría stóð í
þeim stórræðum fyrri hluta ævi sinnar að
endurreisa helgidóm þjóðar sinnar, og hann
þurfti ekki einungis að takast á við erlent
vald, sem umfram allt vildi lialda þjóð lians
sem aflminnstri og sundraðastri, heldur einn-
ig tortryggni og viljaleysi sinna eigin sam=
landa. En hann sigraði í þessari baráttu og
lifði þá gleðistund, að musterið var vígt 516
f. Kr. og gegndi þar síðan prestþjónustu til
dauðadags. Og kristnir menn vita varla af
því, hve rnikið þeir eiga Sakaría að þakka,
honum, sem skilaði guðstrúnni lireinni yfir
það tímabil, sem henni var hættast að grugg-
ast í deiglu austurlenzkra trúarhugmynda.
6. Jeremía. Spámaður sorgarinnar hefur
hann verið nefndur. Og í raun og veru þurf-
um við ekki að vita það, þegar við höfum
séð mynd þessa eftir Michelangelo. Einna
helzt gætum við haldið, að myndin væri tek-
in á því augnabliki, sem sorglegast hlýtur a
hafa verið í sögu spámannsins, þegar hann
flytur Harmaljóðin úti fyrir dyrum Jerúsa -
emsborgar. Á þeirri stundu, þegar ljóð l>ans
fellur í dularfyllsta háttinn í skáldamáli
ingaþjóðarinnar, harmhljóðaháttinn, þar setn
síðari Ijóðlínan liættir í miðjum kliðum, eins
og grátkökkur taki fyrir rödd og mál. f’®®81
ungi, viðkvæmi prestssonur, sem varð að hlý
spámannsköllun. sinni, þótt þreki hans °f'
kröftum væri mörgum sinnum ofboðið. Sja
um við ekki í þessu andliti frá liendi Miche
angelos langa og erfiða spámannsævi, þar sel11
barátta er liáð milli skyldu og skapgerðar-
Og að lokum beið þessa góða sonar, sem a
af var boðinn og húinn til að bera sannlei
anum vitni, ömurlegur dauðdagi. Hann 'ar
grýttur.
7. Esekíel. Hann var flogaveikur og æstur
í skapi. Óliugnanlegustu kapítular í biblíun111
eru frá hans liendi. En samt hefur eng11111
honum fremur mótað stefnu gyðingdóms1118,
Hann lenti með flóði herleiðingarinnar alist
ur til Tel-Abib og settist þar að sem eins
konar prestur hinna lierleiddu, enda var
liann af prestaaðlinum í Jerúsalem. Spádoma
sína boðaði Esekíel oft með táknrænum at
liöfnum, t. d. braut liann sundur leirker Or
sýndi þar með, hvernig Jerúsalem myndi lóg
verða í rúst. Framan af — fram að eyðilege
ingu Jerúsalem — var hann óheillaspan13^
ur, en eftir liana sneri liann við blaðinu.
boð-
aði huggun og hjálpræði og undirbjó s1^ 0
komandi tíma. Esekíel er fulltrúi endurgjal s
kenningarinnar, liann lagði helgisiðastefnvu1111
lið og til hans er rakin opinberunarste na
síðgyðingdómsins. Sjálfur sá liann sýnir
flogaveikisköstunum og skynjaði guðdómler
ar opinberanir. Ef til vill sýnir mynd MlC
elangelos okkur hann, þegar hann sér lielU
in í sandinum renna saman og anda trU
hlása yfir — sýnina, sem skýrði fyrir honuW>»
að Guð megnaði að rekja réttar hinna su» r
uðu, dreifðu — kalla þá saman úr útlegði11111
og gera þá að voldugri þjóð.