Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1944, Qupperneq 16

Heimilisblaðið - 01.07.1944, Qupperneq 16
124 HEIMILISBLAÐIÐ r. ir þrír eða fleiri sálmar. Þá bænt sig lengi, síðan signdi hver sig í nafni þrenningarinnar. Þar á eftir voru enn lesnar bænir, þulur og vers. Loks ávarpaði lesarinn fólkið með þess- um orðum: „Guð gefi oss góðar stundir og gleðilega hátíð“. Var lionum þá þakkað fyr- ir lesturinn með handabandi, og svo tókust allir í liendur og sögðu: „Guð gefi þér góð- ar stundir“. — Sumt fólk, einkum eldra fólk, þakkaði fyrir lesturinn með kossi og bauð góðar stundir með kossi. Eftir lesturinn var fólkið þögult og spakt nokkra stund, þar til húsfreyja gekk frarn 1 búr og fór að skammta, og vinnukona eða bóndadóttir báru fólkinu hátíðamatinn. — Hverjum var skammtað á einum diski, ein- um sér. Menn liöfðu diskinn á knjám sér, meðan þeir borðuðu og snæddu með vasa- hníf eða tálguhníf. Sumir lásu borðsálm og borðbæn, en aðrir létu nægja að signa sig og biðja Guð að blessa sér matinn. Meðan fólkið var að borða, var talað um ýmislegt, en þó með spekt og fjálgleika. Gam- alt fólk talaði mest um fæðingu frelsarans og gamla presta, sem það þekkti og því þótti vænt um. Þegar búið var að borða, kom kaff- ið í allri sinni sykur-, rjóma- og brauðdýrð. Þegar áti og drykkju var lokið, fóru þeir, sem pössuðu fjósið, að gefa kúnum og mjólka þær. Sumir sögðu, að þær töluðu mannamál á jólanóttina, en aðrir sögðu, að þær töluðu á nýársdagsnóttina. Menn vildu ekki forvitn- ast um samtal kúnna, því að það var álitið ólánsmerki. Menn vöktu oft alla jólanóttina við lest- ur og leiki. Sumir skruppu til næstu bæja. En ljótt þótti að spila á spil á sjálfa jóla- nóttina. Þó gerðu sumir það. Á jóladagskvöld- ið var spilað spil, sem hét „púkk“. Glerbrot voru höfð í stað peninga. „Kapítalið“, sem hver fékk til að byrja með, var sextíu. Ef einhvem þraut það, var það kallað „að fara á hreppinn“. Venjulega fór margt fólk til kirkju á jóladaginn og annan í jólum, ef ekki var iðulaust stórhríðarveður. Jólin voru móð- urhátíð annarra hátíða, en siðir og veitingar vora þær sömu. Vín var sjaldan haft um hönd á stórhátíðum. 1 veizlum og boðum voru aðalskemmtanir samtal, ræður, minni í ljóðum (einkum brúð- kaupsvísur, erfiljóð og afmælisvísur), dane spil og söngur. Stundum kváðust góðir kvaéða- menn á. Þeir kváðu sem sé sína vísuna hvor, stundum í spöndum (þ. e. eftir stöfum). 1 brúðkaupsveizlum þótti fangarýrt, ef all- ir drykkjumenn urðu ekki fullir. Sumir flug' ust á, aðrir sofnuðu, en sumum varð flökurt. Mest var víninu lialdið að prestinum, enda urðu þeir oft góðglaðir — blessaðir — °p lentu stundum í áflogum. Þau áflog voru meira talin til skemmtunar en til lýta voru aldrei erfð til langframa. Það bar við, að einn af veizlugestunum druknaði á heiiu- leið, eða datt af baki og meiddi sig nieira eða minna. Yfirleitt skemmtu menn sér niæta vel og einlæglega og áttu margar endurnuu11' ingar frá þessari og hinni veizlunni. DAGLEG STÖRF. Hversdagsleg störf voru ekki margbreytt- Keldhverfingar lifðu þá eingöngu á fjárrœkt- 1 uppsveitinni er skart um engjar, en uti- gangur mikill. I niðursveitinni eru engjar miklar og góðar, en útigangur lítill í hörð- um vetrum. Á sumrum var aflað eins mik' illa heyja og föng voru á og tíð leyfði. En á vetrum stunduðu menn fjárgeymslu, upp' sveitungar úti í liaga, en niðursveitungar uuu í húsum. Hinir síðarnefndu áttu því niein tíma í húsum meðal bæjarmanna en hinir, er stóðu á gaddinum frá morgni til kvölds, elir’ ir sér og aðskildir mönnum nema yfir hla' nóttina. Neðri sveitin er þéttbyggðari og mannfleirl’ þar af leiðandi umbrotameiri í daglegu lífi- Uppsveitungar voru hæggerðir í fyrstu °r ekki málskarfsmenn fyrr en þeir þurftu í al' vöru á að taka. 1 þá daga var lítið um félagsskap. Bænd- ur fóru flestir á hreppamót haust og vor a telja fé sitt til tíundar og á manntalsþing 0 vorin. Helztu mannamót voru því þegar me1111 mættust í veizlum og kirkjuferðuin. VORANNIR. Þegar snjóa leysti á vorin, var sauðfé slepp1 þangað til ær fóru að bera. Vallarvinna byrj- aði, þegar fénu var sleppt. Fyrst var byrjaö að bera vallgang á tún, þann, er að haustuiu

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.