Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1944, Blaðsíða 20

Heimilisblaðið - 01.07.1944, Blaðsíða 20
128 heimilisblaðið Ég gerði þetta allt saman til þess að verj- ast draugunum, og reyndist heldur vel. En sumum dugði þetta ekki nema með höppum og glöppum. Fylgjur og draugar fóru „upp á“ þá eftir sem áður, eins og það var þá kallað. Ekki man ég eftir heimaöldum draugum í Hverfinu, nema „Víkingavatns-Móra“. Það var fólksflesti bærinn í sveitinni; og það var ekki um að tala, að öll stærri heimili þurftu að eiga einn draug að minnsta kosti. En svo voru sögur af draugum, sem alls staðar voru úti og inni, svo sem „Mývatns-Skotta“, „Húsa- víkur-Lalli“,- „Þorgeirsboli“, „Gunnólfsvíkur- 'Skotta“ og „Kverkártungudraugurinn“ og „Hól8-Móri“. — Þetta hyski var stöðugt í trú- lofunarsnatti livað til annars, og var nafn- kennt hjá okkur í Kelduhverfinu og vildi ekki við okkur skilja. Langverstur þótti Þorgeirsboli, því að liann fór í tólf kvikindamyndir. Ef slátrað var nautgrip og menn gengu burtu, meðan verið var að birkja liann, þá þurfti að stinga hnífn- um í skrokkinn. Annars kom Þorgeirsboli og fór í gripinn og tók liann burtu með sér. En bola fór eins og draugunum, sem fara upp úr gröfinni. Ef maður lætur eitthvað ofan í gröf- ina, kemst draugurinn ekki aftur ofan í hana, fyrr en hinn lifandi dregur hnoðann upp úr gröfinni. Mývatns-Skotta og Húsavíkur-Lalli voru hreint ekki álitnir mjög argir draugar. En þau voru á ferðum og létu Þorgeirsbola aka sér á húðinni. Hann dró húðina á eftir sér, því að hann var vakinn upp, þegar búið var að birkja hann á malir aftur. — Kverkár- tungudraugurinn var ákaflega magnaður og vondur viðfangs. — Hóls-Móri gerði enguin manni neitt, en drap fé á Hóli flest allt. Síð- ast var flúið með féð ofan í Hafrafellstungu til Eiríks bóndá. Hann var forvitri mikill og guðhræddur í bezta lagi, og ættaður af Jökuldal. Flæmdi liann Móra burtu og barg fénu. En Móri var samt að flækjast um nær- sveitirnar. Dræpist kind skyndilega, var hann sterklega grunaður. — Það, sem einkenndi Gunnólfsvíkur-Skottu, var það, að hún gekk á skóm úr liákarlsskráp og var liin herfi- legasta afturganga. Hún fylgdi öllum Lang- nesinguin, sem fóru um Kelduhverfið. Við álfa var fólk ekki mjög hrætt, því að þeir voru hættir að drepa fólk á jólanóttnia, enda voru aftansöngvar aflagðir. En það vissu gamlir menn, að þeir bjuggu í bæjumun og fluttu á nýársdagsnótt. Einstöku menn gengn iit það kvöld eða opnuðu bæinn og mæltu: „Fari þeir, sem fara vilja, komi þeir, sein koma vilja, mér og mínum að meinalausu! — Stundum mjólkuðu álfkonur ær á öðru júgrinu eða kú á einum spena og tók þá oft- ast undir skepnuna. Efkýr baulaði í fjósinu á milli gjafa, þ“ var það af því, að liún sá fylgju. Mun þessi kynjatrú hafa lifað góðu lífi víðar en í Hverf- inu, því að ég heyrði menu langt að koinna liafa sams konar trú og undrasögur að segja» enda voru menn þá nýbúnir að lesa Þjóðsög- ur Jóns Árnasonar. Þegar maður slökkti ljós, átti maður æviu- lega að segja: „Guð gefi mér eilíft ljós, sem aldrei deyr!“ — Þegar maður fór eitthvað, til kirkju eða annað, þá þurfti maður að lesa ferðamannabæn, faðir vor og signa sig- Á morgnana var sjálfsagt að lesa morguu- sáhna og morgunbænir og signa sig. Ef niað- ur fór fram á sjó, átti maður að lesa sjo- mannabæn og signa sig. — Maður komst ekki þversfótar dag eða nótt fyrir bænum og sigU' ingum, fyrir utan alla liúslestra. Þó var fólk yfirleitt trúardauft á kirkju og klerka. En trúarvani var svona rótgróinn. SIÐFERÐI. Siðferði Keldhverfinga mun liafa verið í bezta lagi, eftir því sem víða var annars stað- ar. Lygi og svik var hatað og fyrirlitið. Ilver, sem gerði sig sekan þar um, var liafður í lag' um metum og fyrirlitinn. Þjófnaður þotti afar svívirðilegur. Maður, sem dvaldi í Hverf- inu eitt eða tvö ár, stal haustullarmörk- Áar hann dæmdur af sýslumanni og liýddur. Hann varð að flytja burtu úr sveitinni, því að eng- inn vildi ljá lionum hús. Samkomulag lijóna mun hafa verið í frem- ur góðu lagi. Ég lieyrði aldrei talað uni áfl°? og meiðingar meðal þeirra, eins og átti se* stað þá og nú Sums staðar annars staðar. Hus- bændur og hjú deildu stundum. Það bar við, að hjú gengu burtu úr vistinni, eða húsbónd- inn rak þau brott fyrir ósamkomulag. Tveun hjón skildu til borðs og sængur. önnur voru

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.