Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1944, Page 24

Heimilisblaðið - 01.07.1944, Page 24
132 HEIMILISBLAÐIÐ honum eftir auglýsingu. Yar það á búgarði einuin miklum syðst í austurliluta Jótlands. Að öðru leyti var honum ókunnugt um fólkið og allar aðrar aðstæður þar, áður en liann kom þangað. 1 þorpi sveitarinnar, sem Níels ólst upp í, stóð lítið lnis hjá nokkrum háum trjám, bak við kirkjuna. Það var minnsta lxúsið í þorp- inu, en samt sem áður einstaklega snoturt og vinalegt, ávallt mjallhvítt og gluggarnir speg- ilfagrir, og vegurinn heim að liúsinu, um litla garðinn fyrir framan það, malborinn og þokkalegur. Gerði þetta allt liúsið einkar að- laðandi. 1 þessu lnisi bjó Lars tréskósmiður ásamt 6júkri konu sinni, sem legið liafði rúmfösl í mörg ár. Hefði þetta verið þeim dapurt og erfitt líf, ef þau liefðu ekki átt bauk í horni þar í húsinu, þar sem Anna fósturdótt- ir þeirra var. Það var að vísu satt, sem áður var sagt, að enginn héraðsbúa vissi livaðan liún var 6prottin. Hún var lagleg, því gat enginn neitað. I því tilliti var benni meira gefið en flestum öðrum stúlkum, en það sem var þó enn betra var, að hún var góð stúlka, ekki aðeins í al- mennri merkingu, lieldur átti bún þau gæði, sem menn öðlast við það, er Jesús Kristur nær yfirráðum yfir öllu lífi þeirra, hann, sem gaf sjálfan sig að fullu og öllu fyrir oss í dauða sínum og sjálfur er algóður. Anna var auðmjúkt guðsbarn. Meðal ungra pilta og stúlkna þar í sókninni var það bún ein, sem valið liafði góð^. hlutann eins og María, að sitja við fætur Jesú. Þess vegna var hún fósturforeldrum sínum svo frábærlega góð, ekki sízt fóstru siuni í veikindum hennar, og þess vegna hélt húu órjúfandi tryggð við litla heimilið þeirra. Lars tréskósmiður var líka sanntrúaður maður. Það var á vitorði allra í þorpinu, en yfirleitt tóku menn ekkert tillit til þess í dag- legri umgengni. Hverju skipti það með tré- skósmiðsgarm, ef að liann gætti að öðru leyti skyldu sinnar og starfa svo, að þeir, sem bjuggu í húsunum í kring og bæjunum í ná- grenninu, gátu fengið gert við tréskóna sína þegar þess þurfti við. Og þeir fengu það bæði svo vel og snoturlega gert, að þeir voru fyllilega ánægðir. Og þá veittu menn og við- töku ofurlitlu guðsorði um leið, þegar Lars hafði hentugleika til að fara með það, eða lesa það upp úr Biblíunni, sem lá opin «t vinnustofuborðinu, innan um tréskó, leður og svertu. Og blöðin í Biblíunni þeirri báru mörg dökkleit fingraför. Já, Lars notaði þessa vinnustofu sína i meira en einum tilgangi. Þar smíðaði lianu stóra og litla tréskó á stóra og litla fætur í þorpinu. Þar sat liann við vinnu sína og talaði við góðan Guð um þá, sem skóna áttu að fá á fælurna. Þá gat það borið við, ef það, sem hann talaði við Guð um, varð honum sérstaklega mikið alvörumál, að hann varð að krjúpa á kné við vinnuborðið sitt, og þá lieyrði liann ekki ævinlega í dyraklukkunni, þegar geng- ið var inn til hans, og það þó að liátt léti í lienni þegar hurðin var opnuð. Þegar svona bar undir, gat það komið fyr- ir, að viðskiptamaðurinn gæti ekki varizt brosi þegar Lars stóð upp, en þegar hann leit mildum augum sínum á viðskiptavininn, hvarf háðssvipurinn. En þó leit Lars ekki eins milt og blíðlega til neinna eins og barna og ungmenna þeg- ar þau komu í vinnustofuna til hans. Mælti hann þá oft til þeirra nokkur lilýleg orð og áminningar, sem þó virtust einatt að engu gagni koma í bili, en báru ef til vill sinn árangur síðar meir. En eitt var þó víst, að yrði einhver ungliug- urinn fyrir sorg eða mótlæti, rötuðu þeir lil tréskósmiðsins og sjúku konunnar hans, og þeir voru ekki allfáir, sem Lars liafði lijálp- að þannig á margan hátt. Engan þótti Lars þó eins vænt um og Níels Pétur, af öllum þeim, sem þarna komu a vinnustofuna hans, og það frá því að hann var lítill drengur. Hafði smám saman tekist með þeim alveg einstæð vinátta. Það var eins og Níels Pétur yrði allur annar, þegar liann sat í litlu vinnustofunni hjá Lars, en þegar hann var úti með jafnöldrum sínum. Ha«» gat setið stundum saman og rætt við Lars um hin alvarleguslu efni. Hann gerði þá Lars líka að trúnaðarmanni sínum, þegar liaun tók að hugsa um að fara að lieiman og sja sig um í heiminum. Frá þeim degi bað Lars Guð þess daglega, að Níels Pétri mætti auðnast að koinast i

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.