Heimilisblaðið - 01.03.1956, Síða 2
í kosningabaráttunni.
Maður einn, sem verið hafði
flokksbróðir Churchills í íhalds-
flokknum og persónulegur vinur
hans árum saman, skipti allt í einu
um skoðun og bauð sig fram fyrir
Verkamannaflokkinn við þýðingar-
miklar kosningar. Churchill varð
svo gramur yfir þessu háttalagi
mannsins, að hann bauð sig fram
á móti honum og hóf fyrstu ræðu
sína á fjölmennum kosningafundi í
kjördæminu með þessum orðum:
„Heiðruðu tilheyrendur! Þetta er í
fyrsta skiptið, sem ég hef heyrt get-
ið um rottu, er syndir út í sökkv-
andi skip . . . .“
Leyndarmál úlfaldans.
Hvernig stendur á því, að úlfald-
inn getur iifað án þess að drekka
vikum saman — og að þetta stóra
og sterka dýr drekkur aðeins fjórð-
ung af því, sem hestur þarf að
drekka ? — Leyndarmál úlfaldans
er í því fólgið, að innan í maga hans
er fjöldinn allur af smáum „vatns-
geymum“, sem vöðvar ýmist opna
eða loka. Þegar úlfaldinn drekkur,
fyllast hólf þessi og lokast siðan af
sjálfu sér, og í þeim geymist vatn-
ið, þangað til dýrið þarf á því að
halda.
Móðganir.
Ungur blaðamaður í Frakklandi
hafði kallað greifafrú eina apa í
blaði sínu — og var dreginn fyrir
lög og dóm og fékk háa sekt.
,,Ég lofa yður því, herra dómari.
að kalla greifafrú aldrei framar
apa,“ sagði blaðamaðurinn, er dóm-
urinn hafði verið uppkveðinn. „En
það er vonandi ekki refsivert, þótt
ég kalli apa greifafrú ?“
,,Nei, auðvitað ekki,“ svaraði
dómarinn. Um leið sneri biaðamað-
urinn sér að andstæðingi sínum og
sagði: „Verið þér sælar, greifafrú!"
Bezti grímubúningurinn.
A grímudansleik einum í New
Orleans voru fyrstu verðlaun veitt
þátttakanda, sem hafði búið sig sem
górillaapa. Eftir alllanga stund upp-
lýstist það, að sá, sem verðlaunin
hlaut, var í raun og veru górillaapi,
sem gamansamur náungi hafði feng-
ið lánaðan í dýragarði, til þess að
fara með á dansleikinn.
★
Frá því árið 1939 hafa fast að því
10.000 nýjar tegundir lyfja komið
á markaðinn.
★
Frú Larsson í Málmey skildi ný-
lega við manninn sinn. Þegar þau
kvöddust, gaf hann henni hálsfesti,
sem búin var til úr 224 tölum, sem
hún hafði neitað að festa á fötin
hans.
★
Tíu smálesta götuþjappari hvarf
nýlega í Vestur-Berlín. Lögreglan
leitaði að honum árangurslaust í
tvær vikur, en þá komst það upp,
að verkamaður einn, Siegfred Beck-
er, hafði stolið honum, hlutað hann
niður með logsuðutæki og selt hin-
um og þessum hlutana.
Vísa.
Gufi, mér gefSu sumar,
gef mér kœrleiksyl.
Öllum veittu yndi,
sem eitthvað finna til.
Þórarinn Kristjánsson.
WeitniitiblaÍtf
Útgefandi:
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.
Blaðið kemur út annan hvern
mánuð, tvö tbl. saman, 44 bls-
Verð árgangsins er kr. 50,00.
í lausasölu kostar hvert blað
kr. 10,00. Gjalddagi er 14. apr.
Utanáskrift:
Heimilisblaðið, Bergstaðastr. 27,
pósthólf 304, Rvík. Sími 4200-
Prentað í
Prentsmiðju Jóns Helgasonar-
Vori fagnaö.
Vanga strýkur varmur þeyr<
vetri halla gerir köldutn■
Loftið hlýnar, dimman deýr>
dagar langir sitja að völdutn-
Froðu þeytir fossinn air,
fiðlu vorsins hljóma strengtr<
lœkir hjala, lindin lilœr,
leirug elfa klakann sprengtf-
Blána tindar, hœð og hól
hlýir fingur sólar gylla'-
Gróa tún og grœnka skjól, ■
glaðir söngvar loftið fylla-
Hér má sjá und hlíðar rót
hjarðir frjálsar gróður kroPV11'
Lömhin smáu fimiim fót
frá og létt um grundir hopPa'
íYú er engum lífið leitt,
Ijós og varma flestir prísa■
lilómin skœru, eitt og eitt,
upp af vetrar svefni rísa.
Glöð og trii sitt vinna verk
vor og sól um haf og lendur<
unz í grænum sumarserk
sjáleg fósturjörð vor stenduf
Öllum stundin er mi góð —
anga blóm um tún og haga
sem að elska lag og Ijóð,
Ijós og heita sumardaga.
Nú er engum þörf að þjást>
þrána Ijósið endurnterir,
gleði, fegurð, æsku og ást
öllu blessað vorið færtr. ^
Gjalddagi blaðsins er 15. apríl. — Verðið er 50 kr.