Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1956, Síða 20

Heimilisblaðið - 01.03.1956, Síða 20
Hann vaknaði ekki fyrr en sólin var komin á loft. Þá gekk hann út úr kofa sínum, fékk sér morgunbita og beið síðan gestsins, sem hann taldi sig eiga von á. Þeir hlutu að koma til hans; það var ekki virðingu þess manns samboðið, sem átti riffil, að fara sjálfur á fund annarra manna. Innan skamms sá Pepe, hvar tveir menn, Júan Aría og bróðir hans, komu gangandi eftir einum af stígunum, sem lágu um þorpið. Fólk horfði forvitnislega á eftir þeim, en aðrir komu ekki, því að þeir höfðu engan grip misst. Þeir höfðu enga löngun til að borga eða taka þátt í að borga veiðimanni. Pepe beið, þangað til mennirnir nálguðust hann, og sagði svo: — Góðan daginn. — Góðan daginn, svöruðu þeir. Þeir settust hjá honum, þarna úti í sólskin- inu, og horfðu ekki á neitt sérstakt, og þeir voru ekki lengur hræddir, því að á daginn var aldrei neitt að óttast. Það var mjög sjaldgæft, að jagúarinn réðist á geiturnar þeirra eða kýrn- ar að deginum. Eftir hæfilega stund sagði Júan Aría: — Ég rak geiturnar mínar inn í þorpið í gærkvöld og hélt, að þeim væri óhætt þar. — En reyndist það ekki vera? — Það reyndist ekki vera. Eitthvað kom og drap eina þeirra, ágæta geit, hvít- og svart- flekkótta, uppáhaldsgeitina mína. Þegar það fór burt aftur, hvarf geitin líka. Ég á ekki eftir að sjá hana lifandi framar. — Hvað var það, sem drap geitina þína? spurði Pepe. — Illur andi, en í morgun sá ég aðeins slóð eftir jagúar. — Heyrðirðu hann koma? — Já, ég heyrði til hans. — En hvers vegna varðir þú þá ekki geiturn- ar þínar? Júan Aría baðaði út höndunum. — Það væri óðs manns æði að ráðast á illan anda eða jagúar með sveðju eina að vopni. — Það er satt, sagði Pepe. Við skulum vona, að hann drepi ekki aðra geit, þegar hann verður svangur næst, þessi illi andi eða jagúar. — En það gerir hann. Pepe varð rórra, því að samningahorfur hans bötnuðu stórum við þessa viðurkenningu Júans Aría. Það var líka rétt, að þegar jagúarinn haf 1 einu sinni gengið úr skugga um það, hversu auðvelt var að verða sér úti um bráð í þorpinU' mundi hann koma aftur. Hann mundi e hætta ránsferðum sínum í þorpið, fyrr en hann væri drepinn, og þar sem hann vissi, hvar Jn£*n Aría geymdi geiturnar sínar, mundi hann ha áfram að ofsækja þær. — Það er slæmt, sagði Pepe, því að menn missa oft margar geitur í jagúarinn. — Nema veiðimaður drepi hann, sagði Jnan Aría. — Nema veiðimaður drepi hann, endu* 0 Pepe. — Þess vegna er ég kominn til þín, PeP®' sagði Júan Aría. Áhyggjusvipur breiddist andlit hans. Ég vona, að þú sért fáanlegnr , að elta þennan jagúar uppi og drepa hann, Þv að þú ert eini maðurinn, sem getur það. ^ ^ — Mér mundi vera sönn ánægja að ÞV1 drepa hann, en ég get ekki unnið fyrir ekk — Ég ætlast heldur ekki til þess. Enginn etn heila geit í einu, ekki einu sinni jagúar, °S v. hlýtur að finna leifarnar af uppáhaldsgeit11111 minni. Þú skalt fá það að launum, sem jaguar inn hefur ekki étið. Pepe reiddist. — Ætlast þú til þess, a^ e fari að leggja erfiða vinnu á mig og riffiÞ0' minn fyrir hræ, sem jagúar er genginn fra' — Nei, nei! sagði Júan Aría. Ég skal íe þér lifandi geit í viðbót! — Þrjár geitur. ^ — Ég er fátækur maður! kveinaði hmn- mundir setja mig á höfuðið með því! — Sá maður getur ekki kallazt fátækufi se . á tuttugu og níu geitur, enda þótt hann k1111^ að verða það, ef jagúar drepur nógu of*’ hjörðinni hans, sagði Pepe. — Ég skal gefa þér eina geit og tvo kiðhn^ — Tvær geitur og einn kiðling. ,. — Þú ert harðdrægur í samningum, sUe Júan Aría, en ég get ekki hafnað tilboði ÞlP fyrst svona stendur á. Dreptu jagúarinn. * • Pepe gerði sér upp kæruleysissvip, svo ^ þeim manni sómdi, sem átti riffil, er hann riffilinn upp af fallegu ábreiðunni, sem n . geymdi hann á, þegar hann hafði hann e ^ með sér. Hann skoðaði púðurhomið sitt HEIMILISBLAÐIÐ 64

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.