Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1956, Síða 28

Heimilisblaðið - 01.03.1956, Síða 28
þín, ef þú ekki snýrð frá villu þíns vegar. Þar sem þú ert orðin móðir, verðurðu að hegða þér skynsamlega. Barónsfrúin mun sjálfsagt hjálpa þér, og við munum reyna að útvega þér eigin- mann! Hann mundi hafa haldið áfram að tala, ef baróninn hefði ekki tekið utan um herðar Rosa- lie, reist hana upp, dregið hana að dyrunum og kastað henni eins og böggli fram á gang. Þegar baróninn kom aftur inn, var hann föl- ari en dóttir hans. Presturinn hóf aftur ræðu sína: — Já, hvað skal segja? Þeir eru allir eins hér í héraðinu. Það er hörmulegt til þess að vita, en ekkert við því að gera. Maður verður að auðsýna umburðarlyndi, því að mannskepn- an er nú einu sinni svona. Hér giftast þær aldrei án þess að vera barnshafandi, nei, aldrei, frú. Og hann bætti brosandi við: — Maður skyldi næstum því halda, að annað eins væri siður hér í sveit. Síðan mælti hann í ergilegum tón: — Hálfgerð börn leiðast meira að segja út í slíkan saurlifnað. Tali maður um það við for- eldrana, segja þau bara: — Hvað getum við gert við þessu, prestur? Við kennum ekki börn- um okkar annað eins og þetta, en við getum ekki komið í veg fyrir það. — Gott fólk, þjón- ustustúlkan ykkar hefur hagað sér eins------- Gremjan sauð niðri í baróninum, og hann greip fram í: — Hún, hvað kemur hún okkur við? Það er Julien, sem ég er reiður við. Hann hefur komið hneykslanlega fram, og ég tek dóttur mína með mér. Hann gekk aftur og fram um gólfið og varð stöðugt æstari og æstari. — Það er svívirðilegt af honum að táldraga þannig dóttur mína. Hann er asni, óþokki og ræfill, og ég skal segja honum það upp í opið geðið. Ég skal gefa honum vel útilátin kjafts- högg, ég skal slá hann í rot með stafnum mín- um! En prestur var hinn rólegasti og hressti sig á tóbaki. Hann sat við hliðina á barónsfrúnni, sem grét stöðugt. Þegar baróninn þagnaði, mælti hann: — Jæja, herra barón. Okkar á milli sagt hefur hann aðeins gert það, sem allir aðrir gera. Þekkið þér kannske marga eiginmenn, sem eru trúir konum sínum? Svo bætti hann við, dálítið illkvittnislega: — Ég þori að veðja, að jafnvel þér hafið lagt út net yðar. Nú, hönd ina á hjartastað. Er það kannske ekki satt? Baróninn nam staðar, öldungis klumsa yf*1 orðum prestsins. En presturinn hélt áfram máh Jú, víst er það satt. Þér hafið verið smu: eins og allir aðrir. Hver er kominn til að segJa> að þér hafið ekki komið yður í mjúkinn hja laglegri þjónustustúlku, eins og Rosalie er? Ég fullyrði, að allir karlmenn séu breyskir. Hefm kona yðar kannske verið vansælli fyrir þvl> enda þótt þér hafið hegðað yður eins og aðru • Baróninn stóð eins og steingervingur. Presturinn fór sannarlega ekki með neina lygi. Hann hafði gert nákvæmlega það sama og aðrir. Já, hann hafði hagnýtt sér öll ÞaU tækifæri, er honum buðust. Hann hafði ekk1 tekið hjónabandseiðinn of hátíðlega. Hann hafði ekki hugsað sig um tvisvar, þegar honum gazt að þjónustustúlkum konu hans. Var hann kannske þrjótur fyrir því? Hvaða rétt hafð' hann til þess að vera strangur dómari gagnvart Julien? Enda þótt barónsfrúin væri ennþá volan<h> brá fyrir brosi á vörum hennar, þegar henn1 varð hugsað til æskubreka mannsins síns. Jenný lá á bakinu með starandi augu, sokkm niður í angurværar hugsanir. Ein af setning^m þeim, er Rosalie hafði sagt, þrengdi sér inn 1 huga hennar: — Ég sa'gði ekkert, af því að me1 fannst hann svo fallegur! Já, í þessu lá einmitt yfirsjónin! Einnig henn1 hafði fundizt hann fallegur. Og það var ein göngu þess vegna, sem hún hafði gefizt honum, bundizt honum allt sitt líf. Það var þess vegna> sem hún hafði afsalað sér öllu öðru, öllum Þin um fögru framtíðarvonum, öllu hinu óþekktm sem morgundagurinn ber í skauti sér. Hún haf^1 dottið í þetta hjónaband, án þess að megna a^ krafsa sig út úr því aftur. Og þetta var allt ÞV1 að kenna, að henni hafði fundizt hann fallegur’ eins og Rosalie! Allt í einu var hurðinni hrundið harkalega upp. Julien kom inn, hamstola af reiði. Hanu hafði séð Rosalie vola í stiganum og var uU kominn til þess að fá útskýringu á því, hvernig málin stæðu. Hann þóttist vita, að eitthva^ væri í bígerð, að minnsta kosti hafði stúlkan HEIMILISBLAÐIÐ 72

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.