Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1956, Qupperneq 30

Heimilisblaðið - 01.03.1956, Qupperneq 30
eftir því að barnið fæddist, án allrar tilhlökk- unar. Það var eins og hún byggist við áfram- haldandi andstreymi og óláni á komandi dög- um. Vorið var komið. Trén voru ennþá ber og nakin, en í giljum og lautum, þar sem rotnandi gras og trjáblöð lágu í haugum, voru byrjaðir að springa út gulir maríuvendir. Örlitlar, grænar spírur stungu upp kollinum úr brúnum gras- sverðinum og ljómuðu í sólarljósinu. Digur og útlimastór kona hafði tekið við starfi Rosalie. Hún studdi barónsfrúna á göngu- ferðum hennar, þar sem hún staulaðist fót fyrir fót alltaf sömu leiðina eftir trjágöngunum. Baróninn leiddi Jenný, er stöðugt varð þyngri á sér. Lísa frænka hélt undir hinn handlegg hennar. Hún var með allan hugann við hina leyndardómsfullu fæðingu, sem Jenný átti í vændum, en hún sjálf mundi aldrei fá að kynnast. Þannig leið tíminn hjá þeim, án þess að margt væri talað. Á meðan þeyttist Julien um héraðið á hestbaki. Hann var allt í einu orð- inn svo mikill hestamaður. Tíminn leið. Baróninn, frúin og greifinn fóru aðeins einu sinni í heimsókn til Fourville-fjöl- skyldunnar, sem Julien var allt í einu orðin svo hjartfólgin, án þess að nokkur sýnileg á- stæða væri fyrir því. Önnur kurteisisheimsókn var farin til Brisevillefjölskyldunnar, sem ein- angraði sig algjörlega í kastala sínum. Dag nokkurn um fjögurleytið sáust maður og kona koma ríðandi að Asparlundi. Julien hljóp inn í herbergið til Jennýar og sagði más- andi: — Flýttu þér niður! Fourville-hjónin eru komin í heimsókn! Þau vita um ástand þitt og eru komin til þess að heilsa upp á þig. Segðu þeim, að ég hafi gengið út, en komi mjög fljót- lega. Ég ætla aðeins að snyrta mig ögn til. Jenný gekk undrandi niður. Falleg, ung, en dálítið föl kona með þunglyndislegt andlit, blá augu og ljóst hár, kynnti rólega manninn sinn, reglulegan risa með rautt yfirvararskegg. Síð- an bætti hún við: — Við höfum nokkrum sinnum hitt herra de Lamare greifa. Við vitum, hvernig ástatt er fyrir yður, frú, og ætlum þess vegna ekki að tefja lengi, en okkur langaði til þess að heim- sækja yður án hefðbundinna formsatriða. Fynr nokkru sýndu móðir yðar og faðir okkur þa ánægju að heimsækja okkur. Hún talaði svo frjálsmannlega og glaðlega> að Jenný varð strax töfruð af framkomu henn- ar. — Hér er kannske vinkona við mitt hsefi> hugsaði hún. de Fourville greifi líktist aftur á móti birni, sem hefur villst frá heimkynnum sínum. Þeg' ar honum var boðið sæti, setti hann hattinn sinn á næsta stól við hlið sér, hugsaði sig sV°' lítið um, hvað hann ætti að gera við hendurn- ar, setti þær fyrst á hnén, síðan á arma stóls ins og að lokum krosslagði hann þær á brjósti sér, eins og hann væri að biðjast fyrir. Allt í einu gekk Julien inn. Jenný varð furðn lostin. Hún ætlaði ekki að þekkja hann aftur- Hann hafði rakað sig. Hann var fallegur, frjáls mannlegur og töfrandi, eins og í tilhugalíf1 þeirra. Hann þrýsti loðinn hramm greifans °S kyssti á hönd greifafrúarinnar. Það lifnaði ogn yfir greifanum við komu Juliens, ög það hlj°P ofurlítill roði í marmarahvítar kinnar greif3 frúarinnar og augnahvarmar hennar titruðu andartak. Hann talaði. Hann var elskulegur, eins í gamla daga. Stór augu hans ljómuðu glettn islega og hár hans, sem nýlega hafði verið laust og þurrt, var nú mjúkt og glansandi. Þegar greifahjónin bjuggust til brottferðar> sneri greifafrúin sér að Julien og sagði: ---Viljið þér, kæri greifi, koma í reiðtúr a f immtudaginn ? Julien hneigði sig og tautaði: — Já, með ánægju, frú. En greifafrúin greip hönd Jennýar og sagð1 með vingjarnlegu brosi: — Þegar þér eruð orðin frísk, skulum V1 öll fara á harðastökki um héraðið. Haldið þ°r ekki, að það verði skemmtilegt? Með frjálslegri og tígulegri hreyfingu hent1 hún slóðanum á reiðkjólnum sínum yfir han legg sér og hoppaði síðan létt eins og álfur UPP í söðulinn, á meðan maður hennar kvad 1 kauðalega og klofaðist þyngslalega á bak hest1 sínum. Þegar þau voru komin út um hliðið, Julien, sem virtist ljóma allur af aðdáun: HEIMILISBLAÐIÐ 74

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.