Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1956, Page 39

Heimilisblaðið - 01.03.1956, Page 39
Kalli og Palli þurfa að veggfóðra dagstofuna. Þeir ^aupa sér hvítan pappír, breiða hann á jörðina og ^iðja svo storkinn að stíga ofan í svarta málningu °B ganga síðan með gætni eftir pappírnum. Þetta Verður allra fallegasta veggfóður og fer vel á veggj- jfrmn. En þá vill Júmbó einnig láta veggfóðra dag- stofuna sina og fær Kalla og Palla til að hjálpa sér að búa til veggfóður. En fæturnir á Júmbó eru stór- ir og klunnalegir, svo að veggfóðrið hans verður ekki sérlega fallegt. Hin dýrin hlæja að því, en Júmbó finnst það vera fallegasta veggfóðrið, sem hann hefur nokkurntíma séð og er ánægður með það. og Palli hafa fengið sér nýja hatta — mjög ‘aUega, en þá langar til að fá sér fallegar fjaðr- lr ' þá, til að gera þá ennþá fallegri. Þeir fara t*' strútsins og gera hann hræddan, því að hann stmgur alltaf höfðinu niður í sandinn, þegar hann verður hræddur, og á meðan hann stendur þannig, geta þeir Kalli og Palli stolið sér fjöðrum úr stél- inu á honum. En þegar strúturinn lítur upp og sér fjaðrirnar sínar í höttunum á Kalla og Palla, verður hann öskuvondur, nær sér í stóran kakt- us og tekur á rás á eftir þeim, svo að þeir eiga ekki von á góðu, ef hann nær þeim. 83 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.