Heimilisblaðið - 01.05.1956, Blaðsíða 22
Dr. med. K. M. K.
Að anda
Við fyrsta andardráttinn vöknum
við til lifsins, og lífinu lýkur, þegar
við „gefum upp andann". Að anda
er að lifa, og að lifa er að anda.
Varla er nokkur athöfn líkamans
jafn þýðingarmikil fyrir heilbrigði
og vellíðan og andardrátturinn.
Kaldur loftstraumurinn, sem’ sog-
ast inn í gegnum nefið, örvar starf-
semi heilans. Loftið flytur súrefni,
sem er undirstaða allra efnaskipta
líkamans, ofan í lungun og gegn-
um þau út í blóðið, og um leið tek-
ur loftið á móti úrgangsefnunum og
flytur þau burt úr líkamanum með
útönduninni. Ef öndunin er í lagi,
reynir minna á hjartað en ef henni
er í einhverju ábótavant. Sé önd-
unin rétt, léttir reglubundinn og
mismunandi þrýstingur þindarinnar
á innýflin undir með meltingunni.
Sé fullt jafnvægi á inn og útöndun,
hefur það róandi og stillandi áhrif
á allt taugakerfið og hinn andlega
næmleika.
Þetta eru aðeins fáein höfuðatriði
hins margþætta sambands, sem er
á milli öndunarinnar og afkomu
þeirrar einingar likama og sálar,
sem nefnd er maður. Það er sízt að
furða, þótt kennifeður útbreiddra
heimsskoðana, svo sem Yoga-spek-
innar og Búddatrúarinnar, líti á
þjálfun öndunarinnar sem grund-
völl að uppeldi sálarinnar, skapgerð-
arinnar og líkamans.
Engri tölu verður komið á aðferð-
ir þær, sem bent hefur verið á til
öndunaræfinga og öndunarþjálfun-
ar, og það ber vott um, að menn
hafi enn ekki komið sér niður á
neina aðferð, sem tvímælalaust taki
öðrum fram.
En þó eru menn sammála um
eina staðreynd, og hún er sú, að
útöndunin sé að minnsta kosti jafn
þýðingarmikil og innöndunin. Flest-
ir sjúkdómar í öndunarfærunum,
t. d. astma, eru truflanir á útöndun-
inni.
Þér ættuð að gera ofurlitla til-
raun við tækifæri. Þegar þér eruð
er að lifa.
á gangi úti einhvern daginn, skuluð
þér athuga hlutfallið milli skrefa yð-
ar og andardráttarins. Sé öndunin
heilbrigð og eðlileg, ætti útöndun-
in að taka um það bil þrisvar sinn-
um lengri tíma en innöndunin. Ef
þér takið 3—6 skref meðan þér and-
ið að yður, ættuð þér að geta tekið
15—18 skref meðan þér andið frá
yður, án þess að neyðast til að
anda að yður fyrr. Ef þér eigið létt
með það, þurfið þér ekki að hafa
neinar áhyggjur, en að öðrum kosti
mundi ég ráðleggja yður að tala við
heimilislækninn yðar.
Rétt öndun er skilyrði fyrir and-
legri og líkamlegri heilbrigði manna
á öllum aldri. Sérstaklega mikilvæg
er hún þó fyrir barnið. Takið þér
ekki, móðir góð, litla barnið yðar
upp strax, þótt þér heyrið það
hrína hástöfum. Gráturinn er önd-
unaræfing þess! Leyfið því að þjálfa
með honum öndunarfæri sín hálfa
klukkustund á dag.
Leyfið börnunum yðar líka að
hafa hátt og ólmast. Það er þó auð-
vitað ekki nauðsynlegt, að slíkur
fyrirgangur eigi sér stað í beztu
stofunni og á helzt ekki að vera,
þvi að loftið þar er ekki alltaf nógu
gott. Ef börnin fá að ólmast, þang-
að til þau eru að lotum kómin, anda
þau líka hraustlega.
Við eigum ekki að hindra þau í
slíku, heldur ættum við að taka þau
okkur til fyrirmyndar.
Einn af viðskiptavinum Levinskys
var alþekktur fyrir það, hversu
skuldseigur hann var. Hann var, að
heita mátti, ófáanlegur til að borga
það sem hann keypti. Levinsky
skrifaði honum því í örvæntingu
sinni eftirfarandi bréf:
„Herra minn. Hver keypti af mér
heilmikið af vörum og borgaði ekki ?
— Þú. Og hver lofaði að borga eftir
tvo mánuði? — Þú. Hver horgaði
ekki eftir tvo mánuði? — Þú.
Hver er fantur, þjófur og lygari ? —-
Þinn einlægur A1 Levinsky."
Syngman Rhee er kristinnar trua1’
útskrifaður doktor frá Princetou
Tjgx
háskólanum í Bandaríkjunum.
m. a. nemandi Wilsons forseta. Korrl
fyrst fram sem stjórnmálamaður ur
ið 1910, þá foringi sjálfstæðishrej ^
ingar Kóreumanna (gegn Japönum
Fyrst kosinn forseti 1919 (af útla6a
stjórn í Shanghai), aftur 1948 og n
nvleea í briðia sinn.
Louise Sutherland hjúkrunarkon
frá Nýja-Sjálandi fékk fyrir fjórU
árum þá hugmynd, að hjóla
hverfis jörðina. Henni virðist '®
að takast það. Nýlega kom hún
Englands frá New York og hafðl
hjólað 20,000 km. Hún hvílir sig^a
ferðalaginu við hjúkrunarstörf e
aðra vinnu.
HEIMILISBLAÐIÐ
110